21.05.1981
Efri deild: 115. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4821 í B-deild Alþingistíðinda. (5085)

288. mál, Landakaupasjóður kaupstaða og kauptúna

Forseti (Helgi Seljan):

Ég vil taka það fram í sambandi við þetta mál, að eftir því sem ég þekki til þingskapa mun ófært að hafa eitt mál í tveim nefndum, þó að þarna sé um að ræða viðkvæm atriði sem hefur verið rætt um. Ég treysti mér því ekki til þess að bera upp till. hv. 4. þm. Norðurl. e. um að þetta frv., sem hefur fengið afgreiðslu í félmn. beggja d., verið ómótmælt að væri þar rétt komið, færi nú í aðra nefnd þessarar hv. deildar. Ekki síst með tilliti til þess, að formaður menntmn. Ed. er í hv. félmn., er enn síður, held ég, ástæða til þess að vísa till. þangað. Ég vona að hv. þm. uni þeim úrskurði. (StJ: Uni honum illa.) Uni víst, en illa. Ég þykist vita það.