21.05.1981
Neðri deild: 103. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4823 í B-deild Alþingistíðinda. (5091)

213. mál, dýralæknar

Frsm. minni hl. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hl. landbn. Nd. um frv. til l. um breyt. á l. nr. 35 23. maí 1975, um breyt. á l. nr. 30/1970, um dýralækna. Minni hl. hefur komist að þeirri niðurstöðu og leggur til að nokkrar breytingar verði gerðar á frv. eins og það kom frá Ed. Þar er um að ræða einfaldar viðbætur, þ. e. um skiptingu Þingeyjarþingsdýralæknisumdæmis, og leggur minni hl. til að sú skipting verði samþykkt sem fram kemur í frv. sem við höfum flutt, hv. þm. Halldór Blöndal og ég.

Það var leitað álits yfirdýralæknis og beggja búnaðarsambanda, þ. e. Suður- og Norður-Þingeyjarsýslu, á þessu frv. Umsagnir allra þessara aðila eru jákvæðar. Umsagnirnar eru allar jákvæðar og það er eindregið mælt með að frv. verði samþykkt. Ég vil — með leyfi forseta — lesa hér upp úr bréfi frá aðalfundi Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga sem ég hef undir höndum þar sem segir m. a.:

„Landbn. Nd. Alþingis óskaði umsagnar BSSÞ um frv. til l. um breyt á l. um dýralækna, þar sem gert er ráð fyrir að skipta Þingeyjarþingsdýralæknisumdæmi í tvö umdæmi. Stjórn sambandsins samþykkti á fundi 6. apríl s. l. að mæla með þessari skiptingu, en benti jafnframt á að rétt kynni að vera að skoða það mál í víðara samhengi. Nú hefur aðalfundur fjallað um þetta frv. og komist að nokkru að annarri niðurstöðu. Hér er lagt til, að frv. verði samþ. óbreytt og án tafar. Þeirri ályktun er hér með komið á framfæri.“

Og með leyfi forseta hljóðar ályktun aðalfundar Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga á þessa leið: „Aðalfundur BSSÞ 1981 lýsir stuðningi við fram komið lagafrv. um skiptingu Þingeyjarþingsdýralæknisumdæmis í tvennt og skorar á Alþingi að lögfesta frv. á yfirstandandi þingi.“

Þessi áskorun og þessi ályktun kemur eftir umsögn sem hér hefur áður verið nefnd.

Þá vil ég — með leyfi forseta — fá að vitna til upplýsinga héraðsdýralæknisins, Bárðar Guðmundssonar, þar sem hann segir m. a.:

„Í svo stóru héraði sem þessu, þar sem fjarlægðir eru miklar, getur einn dýralæknir ekki sinnt nema broti af því sem gera skal. Það hefur líka sýnt sig í þessu héraði, að þýðingarmikil eftirlitsstörf, svo sem árleg kúa- og fjósaskoðun, hugsanlegar fyrirbyggjandi aðgerðir gegn sjúkdómum, upplýsingaþjónusta og fræðsla hafa að miklu leyti verið vanræktar vegna tímaskorts hjá okkur, sem hér höfum starfað sem héraðsdýralæknar. Tel ég því brýna nauðsyn á því, að héraðinu verði skipt. Ég tel heppilegast að báðir verði búsettir á Húsavik. Þannig nýtast þeir best. Varðandi skiptingu héraðsins í tvö umdæmi tel ég heppilegt að skipta því í Austur- og Vestur-Þingeyjarþingsumdæmi um Fljótsheiði og Hafralækjarskóla þannig að í vesturumdæminu verði Bárðdælahreppur, þeir bæir vestan Fljótsheiðar, sem eru í Reykdælahreppi, og Aðaldælahreppur norðan Hafralækjarskóla.“

Hv. þm. Stefán Valgeirsson taldi að landafræði okkar félaga hv. þm. Halldórs Blöndals væri eitthvað „broguð“. En ég leyfi mér að treysta svo vel á héraðsdýralækninn að hann viti hvað hann er að fjalla um. Hann segir berum orðum hér og greinilega skrifuðum á hvítan pappír að þetta skuli vera norðan Hafralækjaskóla. En landfræðilegar deilur mun ég ekki fara út í.

Það er alveg augljóst, að það verða ævinlega skiptar skoðanir um hvernig skipta beri dýralæknishéruðum og það er auðvitað löggjafans að skera úr um það, hvernig skiptingin verður, því að heima í héraði næst sjaldnast samkomulag um slíkt. Ég geri því ekki mikið úr þeim ágreiningi, sem fram hefur komið um skiptinguna, og legg þess vegna til að þetta frv. verði samþykkt.

Ég get ekki farið mörgum orðum um þann hluta frv., sem kemur frá Ed., og verð raunar að treysta því, að Ed.-menn þ. e. landbn. Ed., hafi vit og þekkingu til þess að gera frv. þannig úr garði að bæði sé rétt og skynsamlega að málum staðið.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta nál. né þetta mál í heild. Hér er um mikið hagsmunamál að ræða og er mjög nauðsynlegt og brýnt að flýta því, að unnt verði að fjölga dýralæknum í þessu héraði sem um ræðir, einfaldlega vegna þess að sá maður, sem þar er fyrir, héraðsdýralæknirinn, sem ætti að vera manna hæfastur til að meta þörfina fyrir aukna þjónustu við bændur, hefur lagt til að þetta verði gert. Og ég tek einhverra hluta vegna talsvert miklu meira mark á hans reynslu, þekkingu og skoðunum á þessu máli heldur en hugmyndum einstakra þm. um hvernig þarna skuli málum háttað.