21.05.1981
Neðri deild: 103. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4827 í B-deild Alþingistíðinda. (5094)

213. mál, dýralæknar

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Í sambandi við afgreiðslu á þessu máli vil ég gjarnan greina frá því, að ég hef ákveðið að á þessu sumri fari fram endurskoðun á dýralæknalögum, bæði á umdæmaskiptingu og eins samræming laganna og að fella lögin saman í eina heild. Um þessi efni hafa farið fram bréfaskipti á milli landbrn. og yfirdýralæknisembættisins og á þessu tel ég vera full þörf, vegna þess að ábendingar eða óskir hafa komið fram um að stofnuð verði ný dýralæknaembætti, bæði þau þrjú, sem hér hafa verið flutt sérstök frv. um á Alþingi, og eins önnur þrjú, sem ekki hafa verið flutt frumvörp um. Ég tel æskilegt og út af fyrir sig hyggilegt að þessi mál séu þannig athuguð öll í senn þannig að væntanlega verði um meiri yfirsýn að ræða. Og það er ásetningur minn, að frv., sem byggist á þeirri athugun, verði lagt fyrir þegar í upphafi næsta Alþingis.

Ég skal ekki orðlengja þetta frekar, en taldi ástæðu til að greina frá þessu hér. En það verður jafnframt að gera sér grein fyrir því, að lög um ný dýralæknisumdæmi verða ekki virk án þess að til komi fjárveiting og menn fáist til starfa. Vonandi er að það gangi vel. Þetta kostar töluvert fé og þarf að vinna að því, að lögin komist í framkvæmd, með því að þeim verði fylgt eftir með fjárveitingu.