21.05.1981
Neðri deild: 103. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4827 í B-deild Alþingistíðinda. (5095)
213. mál, dýralæknar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er nú bráðum hálft annað ár síðan hæstv. landbrh. settist í þann stól, en í lögum segir að landbrh. skuli sjá um að dýralæknalögin séu samræmd og gefin út, en efndir á því hafa ekki orðið. Ég fagna því, að hann skuli ætla að reyna að standa sig eftir að ég hef borið fram fsp. hér á Alþingi um hvernig standi á þessum drætti. En hitt vil ég segja, að mér kemur ekki á óvart þótt hann reyni að bregða fæti fyrir frv. sem einhver af þm. Sjálfstfl. flytur.
Ég vil svo segja það við hv. 2. þm. Norðurl. e., þegar hann talar um flumbruganginn í sambandi við landafræðina fyrir norðan, þá langar mig til að spyrja hann um það, hvort honum sé kunnugt hvar Sandsbæirnir eru og aðrir þeir bæir í Aðaldal sem þarna er talað um. Ég held að hann ætti að fara í huganum fram Aðaldalinn og beygja hjá Hafralæk vestur á bóginn, fara fram í Skriðuhverfið og athuga bæina þarna og velta því svo fyrir sér, hvernig skipta skuli.
Héraðsdýralæknirinn komst að ákveðinni niðurstöðu, og ég heyri að hv. þm. hefur gaman af því að gera lítið úr honum. Ég skal láta héraðsdýralækninum eftir í góðu tómi, næst þegar þessi hv. þm. bregður sér austur fyrir Vaðlaheiði til þess að safna atkv. og til þess að sýna bændum þar hvað hann hefur staðið sig vel, að ræða við menn þar um þessa skiptingu. En hitt ætla ég að segja honum, að sú ræða, sem hann flutti hér áðan um flumbruganginn í sambandi við nýtt dýralæknisumdæmi í Þingeyjarsýslu, verður honum ekki metin til tekna, síður en svo.
Það kom fram hjá hæstv. landbrh., að það þarf að huga að því í tíma að fá fjárveitingar til þess að hægt sé að stofna dýralæknisembætti. Þetta frv. er borið fram af brýnni þörf vegna þess að sofið hefur verið á verðinum varðandi fjölgun dýralækna. Það er fyrst núna sem hæstv. landbrh. hrekkur upp af Þyrnirósarsvefninum og boðar það, að hann ætli að láta endurskoða dýralæknaskipanina nú í sumar. En ef marka skal önnur loforð þessarar hæstv. ríkisstj., ef maður lítur á hvernig ríkisstj. gengur að koma sér saman um hvar virkja skuli, ef maður rifjar upp hvernig gengur hjá ríkisstj. að marka stefnu í iðnaðarmálum, ef maður athugar m. a. hvernig samstaðan var um fóðurbætisskattinn, ef maður lítur á eitt og annað sem þessa ríkisstj. varðar, hlýtur niðurstaðan að verða sú, að Alþingi getur ekki tekið alvarlega þó að þessi ríkisstj. segist ætla að beita sér fyrir einhverju á sumardögum eða ætli að skipa nefnd í mál. Það einfaldlega skiptir ekki máli.
Ef hv. 2. þm. Norðurl. e. vill reynast vel bændum fyrir norðan, ef hann vill ekki bregðast þeim varðandi betri dýralæknisþjónustu, þá á hann að greiða þessu frv. atkv. sitt. Hann á ekki að bera fyrir sig einstaka menn fyrir norðan. Hann á ekki að reyna að gera tillögur norðanmanna í þessum efnum hlægilegar. Hann á að segja eins og rétt er og satt: Það er grundvallaratriði, að ákvörðun sé tekin í þessum efnum. — Ef hæstv. landbrh. vill fjölga dýralæknum í haust umfram það sem hér er lagt til, þá hann um það. En spurningin hér er um þetta: Ætlum við norðanmenn að standa saman um þetta mál og fara eftir vilja okkar umbjóðenda í verki? Það er um það sem þessi krafa er. Það er þess vegna sem hringt er að norðan og beðið um að þetta mál sé samþykkt. Það er þess vegna sem það var tekið fyrir á aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands. Og það er þess vegna sem formaður Búnaðarsambands Norður-Þingeyinga mælir með þessu frv.
Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð að sinni. Það má vera að handjárnin haldi. Við verðum þá að freista gæfunnar, þegar þing kemur saman að nýju, að knýja þessa breytingu fram. Við verðum að vinna að málinu í sumar og láta þá menn, sem standa gegn því nú, verða fyrir þrýstingnum og finna að það er ætlast til þess, að a. m. k. þm. Norðurl. e. hafi ekki frumkvæði að því að standa gegn hagsmunamálum sinna kjósenda.