21.05.1981
Neðri deild: 103. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4829 í B-deild Alþingistíðinda. (5097)

213. mál, dýralæknar

Frsm. minni hl. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins og eingöngu leggja áherslu á það sem ég sagði hér þegar ég mælti fyrir nál. minni hl. landbn. vegna þessa dýralæknafrv. sem hér liggur fyrir. Ég legg áherslu á að það verði samþykkt og vísa þar til álits aðalfundar Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga, álits Búnaðarsambands Norður-Þingeyinga, héraðsdýralæknis og jákvæðra umsagna sem n. hafa borist um málið.