21.05.1981
Neðri deild: 104. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4837 í B-deild Alþingistíðinda. (5115)

Umræður utan dagskrár

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þetta er ekkert gamanmál. Ég ætla að athuga það alveg fullkomlega að kæra þetta. Ég ætla að láta reyna á það, hvort Alþingi Íslendinga getur látið brjóta lög. Ég ætla líka að láta reyna á það, hvort það sé hægt að svara því með spéi og spotti að það sé verið að sigla þjóðarskútunni. Hvað er með þá sem eru sigldir til annarra landa? Hafa þeir þá einhver sérstök fríðindi að mega hvíla sig í tíu klukkutíma? Þetta er ekkert spott. Nú ætla ég í fyrsta og eina skiptið að biðja formann Verkamannasambands Íslands að segja álit sitt á þessu máli, hvort hann telji að það sé sjálfsagt að brjóta þessa löggjöf á meðlimum Verkamannasambands Íslands og hvort hann telji ekki að alþm. eigi að fara eftir þeim lögum sem þeir setja þjóðinni.