22.05.1981
Efri deild: 118. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4867 í B-deild Alþingistíðinda. (5158)

327. mál, umbætur á opinberum byggingum í þágu fatlaðra

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Félmn. hefur tekið þetta frv. til umfjöllunar og mælir með því að það verði samþykkt.

Frv. þetta á rætur sínar að rekja til þess, að 1980 var samþykkt þáltill. á Alþingi á þá leið, að Alþingi skori á ríkisstj. að láta gera úttekt á nauðsynlegum endurbótum á opinberu húsnæði til þess að auðvelda hreyfihömluðum aðgang og að gerð verði kostnaðaráætlun um þau verkefni sem brýnust þyki.

Þetta stjfrv. fjallar um að veita heimildir í nokkrum lögum til þess að viðkomandi ríkisstofnanir geti breytt opinberu húsnæði eftir því sem þarf til þess að auðvelda hreyfihömluðum aðgang og umgang um þessi hús. Hér er um að ræða breytingu á nokkrum lögum.

Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu á lögum nr. 57/1978 um heilbrigðisþjónustu. Það er um að kostnaður. við að gera byggingar heilbrigðisstofnana aðgengilegar fötluðu fólki greiðist af ríki og sveitarfélögum í sömu hlutföllum og stofnkostnaður samkv. lögum þessum.

Í öðru lagi er um að ræða hliðstæð ákvæði og breytingar á lögum nr. 63/1974 um grunnskóla.

Í þriðja lagi er um að ræða hliðstæð ákvæði og breytingar á lögum nr. 112/1976 um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn.

Í fjórða lagi er um að ræða till. um breytingu á lögum nr. 107/1970 um félagsheimill þar sem veitt er hliðstæð heimild.

Í fimmta lagi er um að ræða till. um breytingar á íþróttalögum nr. 49/1956, sömuleiðis í þessum tilgangi. Þetta mál er komið frá hv. Nd. Það var þar samþykkt ágreiningslaust og enginn ágreiningur var í hv. félmn. Ed. um að mæla með samþykkt frv.