22.05.1981
Efri deild: 119. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4873 í B-deild Alþingistíðinda. (5174)
38. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Frsm. 1. minni hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Þrír nm. hafa skilað nál., Guðmundur Bjarnason, Davíð Aðalsteinsson og ég. Aðrir nm. hafa enn sem komið er ekki treyst sér til þess að skila nál. Við skulum ekki láta það hafa áhrif á afgreiðslu málsins, en ég vildi hins vegar nefna þetta til skýringar vegna þess að hér liggur fyrir álit frá 1. minni hl. fjh.- og viðskn. og það er eina álitið sem hefur komið fram frá nefndarmönnum.
Þetta álit er á þá leið, að nefndin hefur rætt frv. og leggjum við undirritaðir til að það verði samþykkt á þeim grundvelli sem fram kemur í áliti 1. minni hl. fjh.- og viðskn. Nd., en í því áliti er gerð ítarleg grein fyrir afstöðunni til afgreiðslu málsins. Nefndinni barst einnig bréf frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og er það samkv. beiðni forsvarsmanna samtakanna prentað hér með sem fskj.
Við leggjum því til, herra forseti, með tilvísun til þess, sem fram kom í áliti 1. minni hl. fjh.- og viðskn. Nd. að frv. verði samþykkt.