22.05.1981
Efri deild: 119. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4873 í B-deild Alþingistíðinda. (5175)

38. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Það er rétt, að það hefur ekki komið nál. frá mér í þessu máli, en ég geri ráð fyrir að afstöðuna til málsins eins og það horfir við, megi allt eins skýra hér úr þessum stól þannig að það komi ekki að sök, en verði þá frekar til þess að hraða störfum þingsins.

Þetta frv. ríkisstj. er sagt vera flutt til þess að efna loforð sem ríkisstj. hafði gefið BSRB við gerð kjarasamninga. Nú er komið í ljós að BSRB telur túlkun fjmrh. á ákvæðum 1. gr. jafngilda samningsrofum, eins og kemur fram í bréfi frá BSRB sem fylgir nál. 1. minni hl. sem fskj. Þar sem fjmrh. virðist fyrirmunað að komast til botns í því, hverju hann hafi lofað hverjum, eða ná samstöðu um skilning á ákvæðum 1. gr. virðist einsýnt að dómstólar verði úr því að skera, hvers konar loforð um sé að ræða af hálfu ráðh. Til þess að stuðla að slíkum úrskurði, þannig að efnisatriði liggi ljós fyrir, tel ég rétt að mæla með samþykkt frv. svo að þetta mál geti farið til dómstólanna og þau efnisatriði, sem um er að ræða, geti komið hér síðar til umfjöllunar þegar þau liggja ljós fyrir. Ég tel einsýnt að þegar efnisatriðin liggja þannig fyrir komi málið aftur til kasta Alþingis.