22.05.1981
Efri deild: 119. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4874 í B-deild Alþingistíðinda. (5177)

38. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það voru mjög eftirtektarverð orð hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar sem hann mælti hér áðan og ágætt að þau festast í þingtíðindum, þegar hann sagði að þessi löggjöf væri til vansæmdar öllum þeim sem að hefðu staðið. Sem sagt, meginefni þessa frv. er að veita opinberum starfsmönnum atvinnuleysistryggingar, og þeir, sem að því hafa staðið, hafa orðið sjálfum sér og öðrum til vansæmdar. (EKJ: Ég talaði um 1. gr.) Hv. þm. talaði um þessa löggjöf og allir, sem til þekkja, vita að 1. gr. er það atriði í þessari löggjöf sem minnstu máli skiptir fyrir opinbera starfsmenn sem og alla aðra.

Ég vil sérstaklega mótmæla því sem hefur komið fram í þessum umr., að 1. gr. feli í sér eitthvert loforð, sem fjmrn. hafi gefið BSRB, og það sé verið að efna þetta loforð með því að samþykkja greinina. Lögin aftur á móti fela í sér loforð, vegna þess að í þeim er verið að staðfesta það loforð fjmrn. að gefa BSRB-mönnum rétt á atvinnuleysistryggingum, því stóra máli sem í löggjöfinni felst. 1. gr. frv. er hins vegar einungis atriði sem varðar kjarasamninga opinberra starfsmanna og veitir báðum rétt, annars vegar BSRB, hins vegar ríkinu. Og hver er þessi réttur? Ég held að það væri þörf á því, að menn gerðu sér fyllilega grein fyrir um hvað þetta mál snýst, um hvað er verið að fjalla, því að þeir, sem hér tala um það, virðast vera svo óralangt frá því að vita um hvað málið snýst að það er alveg furðulegt. Þó er nú búið að reyna að útskýra þetta fyrir mönnum.

Málið snýst um það, að BSRB-menn óskuðu eftir að BSRB-starfsmenn hjá þessum hálfopinberu stofnunum hefðu atkvæðisrétt um aðalkjarasamning. Um það snýst málið. Þetta kemur mjög skýrt fram í bréfi frá BSRB. En það, sem er aftur á móti misskilningur milli ríkisins og BSRB í þessu sambandi, er réttur ríkisins þar á móti. Við teljum að ef BSRB fái rétt til að láta starfsmenn, félagsmenn innan BSRB, hjá þessum stofnunum greiða atkv. um aðalkjarasamning, þá eigi ríkið þar á móti líka að hafa rétt til að fara með samningsumboð fyrir þessar stofnanir, það verði að vera jafn réttur á báða kanta, bæði á starfsmannahliðinni og á atvinnurekendahliðinni, þannig að 1. gr. komi ekki til framkvæmda öðruvísi en stofnanirnar hafi afhent ríkisvaldinu samningsumboð sitt, og þá sé sjálfsagt að félagsmenn BSRB hjá þessum stofnunum greiði atkv. samtímis um aðalkjarasamninginn. Þetta er það sem málið snýst um, og það er þetta sem BSRB vill ekki fallast á.

BSRB vill túlka málið þannig að með þessu ákvæði fái félagsmenn BSRB atkvæðisrétt um samninginn, en ríkið fái ekki umboðið frá stofnununum. Það er þetta sem deilan snýst um. Og ég verð var við það, að menn halda að þessi deila snúist um eitthvað allt annað og miklu meira. T. d. stóð hér upp ágætur maður í gær, hv. 3. landsk. þm., Karl Steinar Guðnason, og taldi að þetta frv. fjallaði nánast um landamærin milli Alþýðusambands Íslands annars vegar og BSRB hins vegar. Ég veit vel að það hafa verið landamæraerjur milli þessara tveggja samtaka og m. a. innan þessara stofnana. En þetta frv. breytir ekki neinu um landamærin milli þessara tveggja samtaka launþega. Það sker ekki á nokkurn hátt úr um það, hvert er starfssvið Alþýðusambandsins og hvert er starfssvið BSRB. Og það kemur raunar skýrt fram í yfirlýsingum sem BSRB hefur gefið, að það ætlast ekki til að þessi grein skeri þar úr í einu eða neinu. Hún fjallar alls ekki um þann þátt málsins. Starfsmenn hjá þessum stofnunum hafa verið bæði félagsmenn í BSRB og félagsmenn í ýmsum verkalýðssamtökum og þeir koma áreiðanlega til með að halda því áfram. Á því verður engin breyting við samþykkt þessa frv. Við höfum gert ráð fyrir því, eins og yfirlýsingar okkar bera með sér, að við munum semja áfram við verkalýðsfélög innan Alþýðusambands Íslands um réttindi þeirra manna sem starfa á starfssviði þessara samtaka.

Herra forseti. Það er ekki ástæða til að fjölyrða frekar um þetta mál. En þetta vildi ég að kæmi nú skýrt fram vegna þess að annaðhvort vitandi eða óafvitandi eru ýmsir stjórnarandstæðingar að reyna að telja alþm. og öðrum trú um að þetta mál fjalli um eitthvað allt, allt annað en það gerir, eru að reyna að telja fólki trú um að með þessu ákvæði hafi verið ætlunin að auka rétt BSRB til að hafa innan sinna samtaka menn sem áður hafa verið innan Alþýðusambandsins. En það stóð ekki til, hvorki að áliti ríkisins né að áliti BSRB. Það er alveg ljóst. Það kemur skýrt fram í yfirlýsingum sem hér hafa verið kynntar. Spurningin er einungis um þetta: Er það ekki rétt, að áður en þessi grein kemur til framkvæmda fái ríkið samningsumboð fyrir þessar stofnanir? Því höfum við haldið fram allt frá byrjun. Það er sá skilningur sem fram kemur í bréfi mínu til fjh.- og viðskn. Nd. í fyrradag. Sá skilningur var staðfestur af fjh.- og viðskn. þeirrar deildar, og mér skilst, að þessi skilningur sé ekki heldur umdeildur við umr. í þessari deild. En það væri sannarlega ástæða til að fá það á hreint, ef ég fer hér með rangt mál, cf menn eru annarrar skoðunar. Ég hef skilið það svo, að þeim skilningi sem fram kemur í bréfi fjmrn. sé ekki mótmælt af einum eða neinum hér í þinginu, og ég vildi gjarnan að annað kæmi fram ef þetta er misskilningur hjá mér.