22.05.1981
Efri deild: 119. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4880 í B-deild Alþingistíðinda. (5184)

314. mál, stálbræðsla

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég tek undir það sem hv. 2. þm. Reykn. og hv. 4. þm. Norðurl. e. hafa sagt hér um vinnubrögð af hálfu iðnrh. varðandi þetta mál. Ég tek undir allt sem þeir báðir tveir hafa sagt um þetta. Ég minni á það, að við 1. umr. þessa máls vék ég að þessu atriði og benti á hve óhæfileg þessi vinnubrögð væru, að ætlast til þess að ein þingnefnd eins og iðnn. Ed. — þó að hún sé nú mjög vel skipuð eins og raunar aðrar þingnefndir hér í hv. deild — væri fær um að vinna svo sem vert væri og nauðsynlegt að þessu máli á svo skömmum tíma.

Hv. frsm. n., 3. þm. Vesturl., hefur skýrt nál., sem hér liggur fyrir, og brtt. frá iðnn. Í raun og veru hef ég ekki miklu við að bæta í því efni, vegna þess að ég hef hugsað mér að fara ekki að ræða efnislega um þetta mál nú. En ég vil vekja athygli á því, að brtt. iðnn. lúta einkum að tvenns konar atriðum: Annars vegar að breyta því yfirbragði og þeim efnisatriðum frv., sem gera ráð fyrir að ríkið hafi sérstaka forustu í þessum efnum, með því að fellt er niður ákvæði um að þetta félag, Stálfélagið hf., eigi að heyra undir iðnrh. Það heyrir ekkert sérstaklega undir iðnrh. Það gilda sömu reglur, ef tillögur okkar verða samþykktar, og um önnur hlutafélög í þessu efni. Það er enn fremur till. sem n. ber fram um að gera ekki undanþágur frá hlutafélagalögum um það, hve margir þurfi að vera í félaginu, eins og hv. frsm. n. vék að. Það er til þess að undirstrika að við gerum því ekki skóna, að þetta verði félag með örfáum aðilum og í framkvæmd verði þetta nánast ríkisfyrirtæki.

Hin atriðin í brtt. n. fjalla raunverulega um það að styrkja stöðu félagsins sjálfs og freista þess að sem mest öryggi sé fyrir því, að rekstur þess geti staðist. Í þessa átt er sú brtt. við 1. gr. frv., að það skuli ákveðið að hlutafé félagsins verði minnst 30% af stofnkostnaði stálbræðslunnar. Brtt. í þessa átt er og að finna í ákvæðum til bráðabirgða vegna þess að þau þýða í rauninni að þetta félag verður ekki stofnað nema það fyrirfinnist nægilega margir einstaklingar og aðilar, aðrir en ríkið, sem telja að það sé grundvöllur fyrir því að leggja fjármagn fram sem hlutafé. Þegar svo er búið um hnútana teljum við meira öryggi og tryggingu fyrir því, að ákvörðun ríkisvaldsins í þessu efni sé rétt. Nánar er kveðið á um fyrirvara í ákvæðum til bráðabirgða sem lúta að því að tryggja að rekstrargrundvöllur sé fyrir þessu fyrirtæki. Þannig er tilskilið að söluverð afurða verksmiðjunnar sé sambærilegt við söluverð á heimsmarkaði á þeirri vöru sem hér um ræðir. Með þessu móti teljum við að við höfum gert það sem í okkar valdi stendur til þess að stuðla að því, að hér sé ekki farið út í neina óvissu, heldur sé gætt fyllstu varúðar, eins og nauðsynlegt er, en hins vegar sé sjálfsagt að efna til þessa fyrirtækis, sem hér er gert ráð fyrir, vegna þess að hér er um að ræða merkilega nýjung í iðnsögu Íslendinga.

Hér hafa allir verið að þakka öllum sem hér hafa talað. Ég get ekki látið vera að bera fram mínar þakkir. Ekki finnst mér að ég hafi neitt minna að þakka en aðrir í þessu efni. En um leið og ég þakka vil ég aðeins víkja að því sem hv. 4. þm. Norðurl. e. var að tala um orðróm sem hefði gengið um það, að við í stjórnarandstöðunni ætluðum að bregða fæti fyrir þetta mál. Ég vil aðeins segja það hér, að ég hef kynnt mér það mál og ég veit að það var á misskilningi byggt. Ég veit líka að þessi orðrómur átti ekki stoð í neinu sem kom frá stjórnarliðum í hv. iðnn. Það hefur verið mjög góð samvinna milli okkar allra í n. og enginn skuggi fallið þar á. Ég þakka öllum meðnm. mínum og sérstaklega formanni fyrir góða samvinnu og gott samstarf.