22.05.1981
Efri deild: 120. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4883 í B-deild Alþingistíðinda. (5193)
56. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég tel að það frv., sem hér um ræðir, sé nokkurt spor í rétta átt þótt ýmsir gallar séu á því, eins og komið hefur fram í fyrirvara sem Eiður Guðnason gerði grein fyrir fyrr í þessari deild. Í annan stað treysti ég þeim ummælum hæstv. forseta Sþ., að það sé álitamál, en ekki öruggt að dómi hinna hæfustu lögfræðinga að hér sé um stjórnarskrárbrot að ræða. Í trausti þess segi ég já, enda verði prentvillan leiðrétt.