22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4895 í B-deild Alþingistíðinda. (5232)
335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. þm. Árni Gunnarsson hefur rifjað það upp, að ég hafi hér á Alþingi fyrr á árum bent á að fyrirtækin í landinu greiddu í mjög mörgum tilvikum lítinn sem engan tekjuskatt, og ég hafi raunar lagt fram lista yfir á annað þúsund fyrirtæki sem ekki greiddu neinn tekjuskatt enda þótt þau hefðu umtalsverða veltu. Hann spyr að því, hvers vegna ég beiti mér ekki fyrir því, að þessi skattur sé sérstaklega lagður á fyrirtækin líka.
Ég veit ekki hvort þessi ábending hv. þm. ber þess vott að hann hafi fylgst vel með umr. um skattamál hér í þinginu, vegna þess að spurningin um skattgreiðslu fyrirtækja í landinu er ekki spurning sem var á döfinni fyrir mörgum árum. Hún var á döfinni hér í þinginu fyrir nokkrum dögum. Þá benti ég á það, að því miður væri ástandið í þessum efnum litlu betra en áður hefði verið og að fyrirtæki, sem greiddu lítinn sem engan tekjuskatt, væru enn á annað þúsund. Og í stjfrv., sem ég flutti, var einmitt gerð tilraun til þess að fjölga verulega þeim fyrirtækjum, sem greiddu tekjuskatt, með ákvæði þess efnis, að afskriftir skyldu hækkaðar um 1/10 hluta ef tekjurnar væru undir ákveðnu marki, sem sagt, fyrirtækin fengju ekki jafnmikla fyrningarheimild ef líkur væru á því að þau slyppu með að borga lítinn sem engan tekjuskatt. En það verður að segja hverja sögu eins og er. Og meðal þeirra hér í þinginu, sem beittu sér hvað ákafast gegn þessari reglu, voru talsmenn Alþfl. Ég tók að vísu eftir því, að hv. þm. Árni Gunnarsson sat hjá við atkvgr. um þessa till. hér, og þakka honum fyrir þann óbeina stuðning sem í því fólst. En það sama verður ekki sagt um talsmann Alþfl. í fjh.- og viðskn. Nd. sem beitti sér mjög ákaft gegn þessari reglu og virtist aðallega gleðjast yfir því, ef frvgr., sem fjmrh. hefði borið fram, hlyti óblíðar viðtökur í þinginu og væri felld. Það var bersýnilega hans aðaláhugamál í þessu sambandi, en ekki hitt, hvort skattgreiðslur fyrirtækja væru sanngjarnar eða ekki. Og því miður reyndi á þetta hér í þinginu, að mikill meiri hl. þm., þ. á m. allflestir þm. Alþfl., var ekki reiðubúinn til að leiðrétta skattaákvæði hvað þetta snertir. Það er því auðvitað meira eða minna út í bláinn að ætla að fara að gera sér vonir um að þessi þáttur skattamálanna verði leiðréttur í tengslum við þetta litla mál.
Ég vil taka það fram í þessu sambandi, að ekki hefði ég á móti því, að fyrirtækin legðu nokkuð af mörkum til þessa sjóðs, og hefði fagnað því, að till. hefði komið fram þess efnis. Ég hef hins vegar lítið haft með þetta mál að gera. Málið var flutt af heilbr.- og trn. Nd. og hefur svo verið vísað til fjh.- og viðskn. deildarinnar og er þaðan komið aftur, nokkuð endurbætt að minni hyggju, vegna þess að nú er ljóst að þeir, sem minnstar hafa tekjurnar, þ. e. menn sem höfðu minna en 2.5 millj. í tekjur á seinasta ári, sleppa við þetta gjald. Það tel ég vera ótvíræðar endurbætur á frv. Ég mundi svo sannarlega greiða því atkv., að fyrirtækin væru látin leggja nokkurt framlag í þessu skyni. En ég geri ráð fyrir að í fjh.- og viðskn. Nd. hafi ekki náðst samstaða um það, veit þó ekki að hve miklu leyti það var rætt þar, en fulltrúar Alþfl. í n. hefðu þá átt að geta komið því sjónarmiði þar á framfæri og varla hefði staðið á því að við Alþb.-menn hefðum stutt það. Hins vegar er reynslan ólygnust og það liggur nú þegar fyrir, að Alþfl.-menn voru ekki reiðubúnir að styðja okkur til þess að auka greiðslur fyrirtækjanna í landinu, og því eðlilegt að menn væru svartsýnir á að hægt væri að koma þessum skattgreiðslum að verulegu leyti yfir á fyrirtækin með samkomulagi í fjh.- og viðskn. sem þegar hafði tekið afstöðu til þessa máls við afgreiðslu skattalaganna.
Auk þess er auðvitað rétt að taka það fram, að ef spurningin væri um það, hvort fyrirtækin í landinu greiddu 100 kr. hvert í þennan sjóð, þá væri það eins og krækiber í helvíti að ætla að leggja það á þau. Þau eru ekki svo mörg að það mundi skipta miklu máli. Þetta væri ákaflega lítil og lág upphæð og mundi ekki vera nema örlítið brot af þeim skattgreiðslum sem fyrirtækin í landinu ættu að greiða til sameiginlegra þarfa ef vel væri. En um þessa skoðun mína er bara ósköp einfaldlega ekki sú samstaða hér í þinginu sem vera þyrfti, og er þá ekki annað en að bíta í það súra epli.
Að lokum vil ég leiðrétta það sem kom fram hjá hv. þm. varðandi vísitöluáhrif þessarar skattlagningar. Það er rétt hjá honum, að þessi skattur kemur ekki inn í framfærsluvísitölu. En skattur sem álag á tekju- eða eignarskatt hefði ekki heldur gert það. Beinir skattar koma í engum tilvikum inn í framfærsluvísitölu, og því aðeins hefði þessi skattur komið inn í vísitölu að hann hefði með einhverjum hætti hækkað vöruverð í landinu, t. d. vegna þess að þetta væri eitthvert álag á söluskatt eða tolla eða annað þess háttar. Þetta vildi ég nú leiðrétta því að allar tillögur, sem fram hafa komið hér varðandi þennan skatt, eru þess eðlis, að þær hefðu ekki mælst í vísitölu.