22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4897 í B-deild Alþingistíðinda. (5233)
335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Við 1. umr. um þetta mál lýsti ég efasemdum mínum um þessa skattlagningu, taldi hana ekki vera nógu skilmerkilega, og einnig að ekki væru svo miklar fjárhæðir sem þarna er um að ræða, að munaði nægilega mikið um það. Ég vil endurtaka það, að ég harma mjög að ekki skyldi takast að bæta lagafrv., sem hefur verið hér til meðferðar á þingi í vetur um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða, á þann veg, að hægt yrði að afgreiða það, svo mikilvægt er málið. Það kom fram hörð gagnrýni strax á frv., að í það vantaði félagslega þáttinn og einnig að búa þyrfti betur um fjármagnsþátt málsins.
Við 1. umr. skaut ég því hér fram, að mín skoðun er sú, að í sambandi við þetta mál hefði átt að taka það mjög til athugunar, hvort ekki hefði verið eðlilegt að fram kæmi í þetta verkefni sérstakt framlag frá lífeyrissjóðunum í landinu. Lífeyrissjóðirnir eru að vissu marki nokkurs konar líftrygging fyrir fólk til elliáranna og mín skoðun er sú, að ekkert væri óeðlilegt við það að útbúa löggjöf þannig að það fjármagn sem rennur í gegnum þessa lífeyrissjóði yrði notað að hluta til þess að byggja upp þetta mikilvæga verkefni sem allir eru sammála um að verði að gera. (Gripið fram í: Af hverju ekki ríkissjóður?) Ég er líka á þeirri skoðun, hv. þm., að það sé komin reynsla á það. Þegar lögin um Framkvæmdasjóð þroskaheftra voru sett hér fyrir tveimur árum átti ég hlut að því ásamt öðrum að setja ákveðna grunntölu inn í þá sjóðsstofnun sem yrði veitt á fjárlögum ár hvert og hækkaði eftir verðlagi hvers árs. Þessi grunntala var 1 millj. 1978–1979, en á fjárlögum næsta árs verður þessi tala, þessi sjóður með beinu framlagi á fjárlögum ríkisins, komin á fjórða milljarð gkr. Þetta hefði ég talið að hefði átt að gerast í þessu máli einnig.
Ég ætla einnig að segja það hér í leiðinni, að mér finnst að það þurfi að skoða þetta mál rækilega. Ég get fallist á að nauðsynlegt sé að láta þetta frv. til l. ná fram að ganga nú á þessu þingi, en þó með þeim fyrirvara frá minni hálfu, að mér finnst að það þurfi að liggja ljóst fyrir, að unnið verði að því nú á milli þinga að útbúa lagafrv. um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða þar sem fjármagnskostnaðurinn eða fjármögnunarkostnaðurinn verði frágenginn um leið til frambúðar. Þetta vona ég að verði tekið til greina og rækilega unnið að því nú á milli þinga að af þessu geti orðið. Þetta er það mikilvægt mál og búið að ræða svo mikið um nauðsyn á verulegu átaki í málefnum aldraðra að það er kominn tími til framkvæmda.