22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4899 í B-deild Alþingistíðinda. (5236)

335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram í sambandi við nál, á þskj. 1012, sem ég undirritaði ásamt öðrum nm., að ég tók mjög skýrt fram í n. — mjög skýrt, að ég harmaði það að tekjuleiðin, sem upphaflega var áformuð, um ákveðið gjald á miða í veitingahús með vínveitingaleyfi hefði ekki náð fram að ganga, ég væri jafnframt persónulega og að lífsskoðun algerlega á móti nefsköttum og teldi þetta mjög slæmt neyðarúrræði. En til þess að tryggja framgang málsins mundi ég greiða þessu atkv., þar sem fyrir lægi að málið sjálft væri í hættu og ekki fyrirsjáanlegt að það næði hér fram að ganga á hv. Alþingi að þessu sinni vegna þess að samkomulag náðist ekki í n. um aðra tekjustofna, eins og að skattleggja fyrirtæki o. s. frv. Og svo hart kvað að þessu, að ef ekki hefði komið til mjög eindregin og drengileg afstaða Alberts Guðmundssonar, sem hefur fylgt þessum málum eftir bæði í borgarstjórn og hér á Alþingi, og Matthíasar Bjarnasonar, þá væri framgangur málsins um Framkvæmdasjóð aldraðra í beinni hættu og mjög tvísýnt að það næði frama að ganga á Alþingi að þessu sinni.

Ég tel þetta algert neyðarúrræði. Ég tel tekjustofninn ranglega valinn og óheppilegan og er honum andvígur. Hins vegar vil ég ekki verða þess valdandi að stöðva þetta mál. En ég legg á það mikla áherslu, að þessi tekjustofn verði endurskoðaður, eins og hv. 1. þm. Vesturl. kom inn á hér í sinni ræðu, að unnið verði að endurskoðun þessa tekjustofns í sumar og á næsta Alþingi liggi fyrir frv. um að tekna til þessara framkvæmda verði aflað á annan hátt. En til þess að tryggja málinu framgang, sem ég tel hina mestu óhæfu að Alþingi afgreiði ekki frá sér, þá stend ég að þessu nál. og vil ekki vera valdur að því, að þetta mál fái ekki afgreiðslu hér að þessu sinni í hv. Alþingi.

Ég legg áherslu á það, að í þessu nál. kemur alls ekki fram mín persónulega afstaða til þess, hvernig eigi að afla tekna til framkvæmdanna, heldur er þarna einungis um að ræða samkomulag milli aðila til að tryggja að þessi upphæð verði til í þennan málaflokk. Ég geri fastlega ráð fyrir að flokksbræður hv. þm. Alberts Guðmundssonar og Matthíasar Bjarnasonar hefðu hreinlega stöðvað framgang málsins ef ekki hefði komið til eindregin afstaða þeirra.

Í sambandi við ágæta ræðu hv. þm. Árna Gunnarssonar vil ég aðeins taka það fram, að það virðast nú vera örlög okkar beggja, bæði hvað varðar að skerða fyrningarafskriftir af fyrirtækjum, sem ég býst við að þessir flokkar hafi nokkra samstöðu um, og tekjustofn til þessa, að þarna klofna þessir flokkar hvor frá öðrum þótt þeir hafi í meginatriðum sömu afstöðu. Er það enn eitt dæmið um að þessir flokkar virðast ekki geta komið sér saman í stefnumálum, sbr. afstöðu þeirra til fyrningarafskrifta.

Ég ætla ekki að fara að rifja hér upp liðin og afgreidd mál. Ég vil aðeins leggja áherslu á það í sambandi við fsp. Halldórs Blöndals, hvort samráð hafi verið haft um þetta við verkalýðshreyfinguna, að ég veit ekki til þess, að svo hafi verið gert, enda var þessu á síðustu stundu vísað til fjh.- og viðskn. Hún hafði enga aðstöðu til annars en að breyta frv. — og það mjög til bóta — með því að leysa undan þessari greiðsluskyldu börn yngri en 16 ára og þá sem hefðu tekjuskattstofn undir 2.5 millj. gkr. Það álít ég að hafi verið mikið til bóta og n. hafi haft þau ein afskipti af frv. sem voru til bóta.

Þetta frv. er búið að velkjast í heilbr.- og trn. hér á þinginu og við fengum það í hendur á síðasta stigi málsins og þá lá fyrir þetta neyðarúrræði um þessa tekjuöflun. Ég þykist vita að afstaða Alþýðusambandsins sé sú, að það sé algerlega á móti nefsköttum. Í Alþýðusambandinu er nú starfandi nefnd sem vinnur að velferðarmálum aldraðra. Formaður hennar er hv. 1. landsk. þm., Pétur Sigurðsson. Ég held að þeir muni líta með skilningi á það, hvers konar aðstöðu hér var um að ræða. Ég get þó engar yfirlýsingar gefið fyrir verkalýðshreyfinguna um þetta. En ég vil bara tryggja að þetta mál nái fram að ganga og það væri Alþingi til vansæmdar ef það hlypi frá að lögfesta þetta frv. Það vill verða svo þegar þarf að tryggja framgang mála, að þá þarf að ná þar ákveðnu samkomulagi. Í því þarf ekki að felast persónuleg afstaða flokks eða nm., heldur verður þar oft hver og einn að slá mjög af — sem ég geri í þessu tilfelli og reyndar aðrir nm. líka — til þess að tryggja framgang málsins. Þetta vildi ég að kæmi skýrt fram.