22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4900 í B-deild Alþingistíðinda. (5237)

335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Mér þótti mjög merkilegt að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson skyldi telja til tvo menn úr mínum flokki sem hann sagði að hefðu komið í veg fyrir að Sjálfstfl. stæði á móti því, að fé yrði lagt til Framkvæmdasjóðs aldraðra. Þetta er afskaplega ómaklega mælt til þeirra sjálfstæðismanna sem ásamt Matthíasi Bjarnasyni undirbjuggu málið í hv. heilbr.- og trn. en lýsir aftur þeim lágkúrulega málflutningi sem stjórnarliðar eru farnir að tileinka sér þegar þeir velja nýjar skattaálögur á þjóðina.

Ég vek athygli á því, að hv. þm. sagði að hann teldi tekjustofninn ranglega valinn og óheppilegan. Hann sagði orðrétt: „Ég er honum andvígur. Hann er ranglega valinn og óheppilegur og ég er honum andvígur.“ Samt sem áður, þótt hann segi þetta, þótt hann viðurkenni að Alþýðusamband Íslands sé á móti nefsköttum, hefur hann ekki þrek til þess hér á Alþingi einu sinni að taka undir sjónarmið þeirra manna sem benda á þetta samhengi, heldur notar hann tækifærið, þegar hann kveður sér hljóðs, til þess að veitast með ómaklegum hætti að þeim þm. sem vilja taka undir þau sjónarmið verkalýðshreyfingarinnar og undir þau sjónarmið Alþýðusambands Íslands að beinir skattar séu orðnir of háir. Svo situr hann þegar verið er að skerða launin um 7%. Ég geri ráð fyrir að hann hafi hlaupið yfir þá kafla í dagblöðunum í dag þar sem getið var um mótmæli Sveinafélags járniðnaðarmanna á Akranesi, þar sem mótmælt var kjaraskerðingunni 1. mars, og lá þó ekki fyrir, þegar þau mótmæli voru gerð, að Alþingi hygðist bæta við nýjum nefskatti á þessum síðustu tveim dögum. Og það var síður en svo að formaður Verkamannasambands Íslands hefði neinar áhyggjur af því, hvort þetta hefði verið borið undir verkalýðshreyfinguna, hvort hún teldi rétt að fara þessa leið eða aðrar til þess að útvega fjármagn í dvalarheimilissjóð aldraðra. Hann sagði: Um það varðar mig ekki neitt, það veit ég ekkert um. Einhverjir aðrir hugsa um það. (GJG: Ekki sagði ég það svona.) Eitthvað í þessum dúr.

Tveir feðgar sátu saman — og nú bið ég hæstv. forseta að leiðrétta mig ef ég fer rangt með söguna. Tveir feðgar sátu saman og voru að tæja hrosshár og sonurinn spurði: Hvert fara sálir prestanna þegar þeir eru dauðir? Og þá sagði faðir hans: Við skulum ekki gefa um það, sonur sæll, prestarnir vita um það. Við skulum vera að tæja hrosshárið okkar. — Og það er það sem formaður Verkamannasambands Íslands er að gera hér á þinginu. Hann er að tæja hrosshárið sitt. En hann kemur hvergi nálægt þeim málum sem varða almenning í landinu eða þá menn sem hafa kosið hann sem formann Verkamannasambands Íslands. Um þá varðar hann ekki, af því að nú lítur hann hér upp á þessa 10 menn sem eru hér, saknar þess að vísu að postulatalan skuli ekki vera, þeir skuli ekki vera 12, og í 12 manna hóp er auðvitað einn svikari, og skilur ekki af hverju þeir skuli ekki vera hempuklæddir og með hvítan kraga. En hann sér í anda fyrir sér geislabauginn í kringum þá og stynur með sjálfum sér um leið og hann tekur í nefið: O, drottinn minn og guð minn.

Nei, vitaskuld er þessi maður ekki kominn hingað inn til þess að standa að því, að fólki sé hlíft við nýjum nefsköttum þegar aðrir eru aflagðir. Hefði nú ekki verið einfaldara t. d. að láta bara 1.5% standa, eins og þau voru í sjúkratryggingalögunum, og ákveða, að tiltekin fjárhæð af sjúkratryggingagjaldi skyldi renna í dvalarheimilasjóð aldraðra, og sleppa skattstofunum við nýja skriffinnsku? Þetta eru sömu peningarnir. Þeir koma úr sömu vösunum. Þetta er sami beini skatturinn og sjúkratryggingagjald, hann heitir bara annað. Það voru 6 millj. 750 þús. Hefði þá ekki gert mikið til þó að nefskatturinn á mann hefði verið um 120 kr. Þá hefði verið hægt að hafa sjúkratryggingagjaldið óbreytt inni og segja að sá hluti sjúkratryggingagjaldsins, sem er af tekjum sem eru undir 6 millj. 750 þús. kr., skuli renna í dvalarheimilasjóð aldraðra. Þá þurfti ekki að flytja þetta frv. Þá þurftu starfsmenn skattstofanna ekki að byrja að merkja öll framtölin að nýju. Þá þarf ekki að prenta upp á nýtt skattseðlana og búa til nýjan reit fyrir þennan nefskatt. Þá var hægt að nota þá vinnu sem búið var að vinna í skattstofunum. Þá þurfti ekkert af þessu. En það þurfti einhvern veginn að gefa og taka. Drottinn gaf og drottinn tók, og þess vegna er það sem þeir hafa ákveðið í ríkisstj. að lækka sjúkratryggingagjaldið um 100 kr. og segja: Ríkissjóður leggur þarna fram 100 kr. og í staðinn grípur ríkissjóður þetta inn og kallar nefskatt á fólkið í landinu og segir: Fólkinu þykir svo vænt um gamla fólkið að það munar ekkert um 100 kr. — Auðvitað eru menn reiðubúnir að leggja fram 100 kr. og þótt það væru 200, ef menn vissu að það rynni til gamals fólks. Það er ekki það sem við erum að neita. Við erum að neita því, að þörf sé á nýjum nefskatti. Við erum að segja að ríkissjóð munar ekkert um 10 millj. kr. handa gömlu fólki og það er óþarfi að leggja á nýjan skatt fyrir litlar 10 millj. kr.

Og hugsa sér svo að þetta skuli vera ríkisstj. sósíalisma og samvinnuhreyfingar sem sér engin ráð önnur en þessi. (Gripið fram í: Og einkaframtaks.) Hún sér engin ráð önnur en þessi til að koma til liðs við gamla fólkið. Það er von að formaður Verkamannasambands Íslands sé sæll á svipinn núna og með guðræknisvip þegar hann horfir á góðu mennina sem ætla að leggja þetta af mörkum, nefskatt á fólkið, og segja: Sjá, hvað ég hef gert, ég hef látið ykkur fá einn milljarð gamlan, segja þeir, af því að þeim finnst 10 millj. of lág tala. Af hverju er ekki bara talað um 10 millj.? Af hverju er verið að tala um gamlan milljarð? Af hverju er ekki talað um 10 millj., sem þetta er, talað um gjaldmiðilinn eins og hann er í landinu? Af hverju er ekki talað um skilding, af hverju er ekki talað um mörk eins og Eykon talar um? Af hverju er ekki talað um kúgildi? Já, það er von að menn segi að málið sé í hættu ef ekki er farin þessi leið. Ætli það sé seinlegra að greiða atkv. með brtt. heldur en á móti henni? Ætli frv. geti ekki farið alveg jafngreiðlega í gegnum 2. umr. hér og 3. og í gegnum Ed. þótt þar standi að við viljum strax taka af skarið um það, að þessi gjaldmiðill verði áfram í fullu gildi? Við treystum ekki ríkisstj. í fjárlögum, við höfum vonda reynslu af henni. Við viljum binda þetta framlag heildartekjunum.

Að einu leyti höfðu þó aths. mínar við 1. umr. málsins, skírskotun mín til verkalýðshreyfingarinnar, áhrif. Fjh.- og viðskn. treysti sér ekki til að mæla með því, að þessi tekjustofn yrði varanlegur, vegna andstöðu verkalýðshreyfingarinnar sem formaður Verkamannasambandsins vill bara ekki segja frá. En svo tuskulegur var hann hér áðan að það var greinilegt að Ingólfur Ingólfsson í Vélstjórafélaginu hafði tuskað hann til. Undarlegt að hann skuli ekki vera með svartan blett á nefinu eftir, af því að Ingólfur er nú ekki vanur að hirða um hvar hann tekur í þessa gutta. Og engin hætta væri á því, ef hann væri hér á Alþingi, að farið væri að með þessum hætti, að okkur væru settir þessir úrslitakostir. En fréttir hefur maður af því, að þegar helstu verkalýðsleiðtogar Alþb. hittast uppi á Grettisgötu eru þeir ekki allir alsælir sem þar koma. Og ég held að Guðrún Helgadóttir sé stundum upptekin við að skrifa söguna af Jóni Ormi, heitir hann það ekki, þegar hún á að mæta á fundi hjá verkalýðshreyfingunni uppi á Grettisgötu.

Ég vil svo að lokum segja það, að það er auðvitað tímasóun í sjálfu sér að vera að reyna að bæta eitthvað úr málum hér. Það kom til mín einn framsóknarmaður í dag og sagðist endilega vilja fá steinullarverksmiðju norður og bað mig að greiða fyrir því í mínum flokki. Ég sagði við hann: Þú skalt fá hana þegar við fáum dýralækninn í Þingeyjarsýslu. Ég var rétt að prófa hvort mér tækist að nota sömu málsaðferðina og hv. 6. þm. Suðurl., að setja sjálfan mig á uppboð. (Forseti: Vorum við ekki staddir í 8. dagskrármálinu?) Ja, það er nú svo að maður hefur ekki dagskrána við höndina, herra forseti: En það var nú svo að þessi ágæti maður tók mig ekki alvarlega, þegar ég var að tala um dýralækninn, og sá að ég var að spauga. Og það má kallast ágætt meðan Alþingi er þannig skipað að þar skuli þó a. m. k. vera einn maður sem menn brosa að þegar hann setur sjálfan sig á uppboð og menn vita að hann meinar það ekki. Ég hef hins vegar þær fregnir af mönnum fyrir norðan, að þeir haldi, að eitthvað hafi komið fyrir hv. 2. þm. Norðurl. e., og séu að velta því fyrir sér, hvort rétt sé, úr því sem komið er, að láta lækni eða dýralækni líta á hann.