22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4921 í B-deild Alþingistíðinda. (5262)

301. mál, umferðarlög

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af því sem hér hefur komið fram í umr.

Hv. 1. landsk. þm. kallaði hér fram í í dag, þegar ég var að tala um að mér fyndist óæskilegt og raunar ósæmilegt af Alþingi að setja löggjöf sem ekki væri ætlast til að væri framfylgt, og meira að segja þeir, sem brytu löggjöfina, væru óhultir fyrir refsingu. Þetta sagði hv. þm. að væri rangt. Ég fagna því, að er hún flutti síðari ræðu sína hafði hún lesið betur það sem um er að ræða, þannig að ljóst er að ekki er um refsiákvæði að ræða.

Hér hafa nokkrir hv. þm. komið upp hver á eftir öðrum og talið ótvíræð rök fyrir ágæti þess og nauðsyn, að hér yrði lögfest að notuð skyldu bílbelti í bifreiðum. Ég hef út af fyrir sig ekkert við það að athuga. Um þetta eru skiptar skoðanir. Menn hafa á því mismunandi skoðun, hvað í þessu sé réttlætanlegt og hvað ekki. Mér finnst hins vegar að það sé um þetta mál eins og mörg önnur alvarleg mál hér á hv. Alþingi, sem ekki eigi og sé raunar ósæmandi hv. þm. að hafa í flimtingum eða tala um í gamansömum tón, eins og mér fannst hv. þm. sumir hverjir gera. Meira að segja hæstv. forseti, sem yfirleitt hefur vandað vel til röksemdafærslu og á auðvitað að gera það, talaði hér meira og minna tvist og bast í allar áttir og taldi einungis um þrjá vegi að ræða í vegakerfi landsins sem hugsanlega gæti átt við að þar ætti ekki að nota bílbelti. Ég hygg að þessir vegir séu miklu fleiri ef menn staldra við og gá að hvar hættur leynast í okkar þjóðvegakerfi, í hinum bröttu fjallshlíðum. Og það gerist meira en að umferðarslys eiga sér stað daglega hér í þéttbýlinu. Það gerist æðioft að umferðarslys eiga sér stað einmitt á þessum vegum, þar sem sannað er að notkun bílbeltis hefur orðið fólki að bana, og það er það sem er verið að benda á. Lögleiðing bílbelta getur í vissum tilvikum orðið til þess beinlínis — það sýnir reynslan — að valda fólki bana.

Ég spyr t. d. eins og ég spurði í dag: Hvað réttlætir það, að t. d. leigubílstjórar séu undanþegnir þessari lagaskyldu ef mikið öryggi er því á annað borð samfara að bílbelti séu notuð? Ég sé ekkert sem færir rök að því, að minni þörf sé fyrir leigubílstjóra að nota bílbelti heldur en einhvern annan einstakling sem situr undir stýri í bíl, þannig að mér finnst þetta stangast á.

Hv. 9. þm. Reykv. taldi að mín röksemdafærsla í málinu væri mikið misvísandi. Hann taldi að ég vildi senda lögregluna á börnin og viðhalda boðum og bönnum gagnvart þeim. Þetta er mesti misskilningur hjá hv. 9. þm. Reykv. og raunar lítt skiljanlegt að jafngreindur maður og hv. 9. þm. Reykv. oftast er skuli rugla svona saman. Það er staðreynd í dag og hefur verið lengi, að hjólreiðar á gangstéttum eru bannaðar. Því hefur því miður verið allt of lítið fylgt eftir, að eftir því væri farið.

Hv. 10. landsk. þm. vakti áðan athygli á orðalagi 1. gr. Hver á að skera úr um það, að hjólreiðar á gangstéttum valdi ekki hættu eða óþægindum fyrir aðra vegfarendur? Ég held að ákvæði af þessu tagi séu afskaplega óskynsamleg í löggjöf og verði ekki til þess að greiða götu þess öryggis sem menn eru um að tala. Hvað sem menn segja hér um hegðunarmunstur eða hvaða nöfnum sem menn nefna þetta, þá er það staðreynd, að hér er um að ræða ástæður sem menn eru síður en svo sammála um. Menn eru á gagnstæðri skoðun um það hvort lögleiðing bílbelta kemur að þeim tilætluðu notum sem réttlætir að svo sé gengið á frelsi einstaklingsins. Mér fannst a. m. k. hæstv. dómsmrh. vera afskaplega lítið sannfærandi með þessu máli. Hann margítrekaði það, að hann ræki ekki áróður fyrir þessu frv., það væri — sem og raunar er rétt — auðvitað þingmanna að skera úr um það. En væri hæstv. ráðh. sannfærður um ágæti þessa máls, þá er ég ekki í vafa um af mínum kynnum við hæstv. ráðh., að hann hefði rekið áróður fyrir því, að málið færi hér í gegn og næði fram að ganga á þessu þingi.

Ég skal ekki, herra forseti, eyða öllu fleiri orðum um þetta. Aðeins að lokum: Hv. 3. þm. Austurl., varaformaður Framsfl., ef ég man rétt, Halldór Ásgrímsson, var einn af þeim sem höfðu hér efni frv. að gamanmálum. Hann staðnæmdist fyrst og fremst við það, að það væri nóg að menn gætu ekið aftur á bak án bílbelta. Hann færði fram þau rök fyrir þessari skoðun sinni, að í sínum bíl hefði bakkgírinn verið bilaður alllengi. En einnig hlýtur hann að hafa leitt hugann að því, að afturábakleiðin hjá Framsfl. í verðbólgumálunum hefur einmitt verið á þennan veg líka. Og það er það sem hv. þm. og varaformaður Framsfl. hefur líklega haft fyrst og fremst hug á: að vera í samræmi við sjálfan sig bæði í keyrslunni aftur á bak í umferðinni og í keyrslunni aftur á bak í pólitíkinni, verðbólgumálum, verðlagsstefnu Framsfl.