22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4923 í B-deild Alþingistíðinda. (5265)
320. mál, raforkuver
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Þá hafa menn fyrir augum úrslit þessa máls eftir 2. umr. í hv. deild, og það verð ég að segja, að ég tel málið síður en svo hafa tekið breytingum til bóta, að ég nú ekki tali um að það hefur ekki tekið neinum stakkaskiptum. Ég átta mig satt að segja ekki á þeirri umstokkun og viðsnúningi sem á að heita að hér gefi á að líta í 1. gr. frv. svo og 2. gr. þess eftir þær breytingar sem gerðar voru við atkvgr. eftir 2. umr. Þessar breytingar skipta nákvæmlega engu máli. Það er sama upptalningin á því sem sótt er eftir heimildum til, aðeins breytt röðun í uppsetningu á hinu prentaða þskj., en alls engin röðun á framkvæmdum, enda er hér ekki verið að taka ákvarðanir um þær. Eftir sem áður stendur stefnuyfirlýsing hæstv. orkumálaráðh., sú stefnuyfirlýsing sem hann síðast hafði upp í útvarpi fyrir tveimur kvöldum, þar sem hann tók skýrt fram og tók af tvímæli um það, að fast yrði haldið við það að virkja næst utan eldvirkra svæða.
Spyrja má — þar sem breyting á sér stað t. a. m. í 2. gr. og ég hef heyrt menn leggja upp úr því, að þar er talað um að ríkisstj. kveðji til aðila til þess að segja til um þjóðhagslega hagkvæmni virkjunarleiða og þýðingu þeirra fyrir raforkukerfi landsins: Þurfti að taka þetta fram? Lá ekki í augum uppi að þetta mundi verða lagt til grundvallar, þjóðhagsleg hagkvæmni virkjunarleiða, þegar og ef tekið er til við framkvæmd virkjunar? Þessar breytingar skipta nákvæmlega engu máli. Þetta skiptir í raun og veru engu máli, það sem gefur á að líta í lagafrv. sjálfu. Það, sem skiptir höfuðmáli í þessu sambandi, er stefnan sem fylgir þessari lagasetningu áformaðri. Það er sú stefna sem skiptir meginmáli. Og það getur vel verið að mönnum sjáist yfir hver sú stefna er, að menn séu svo uppteknir við einstakar virkjanir og áhuga sinn á þeim að þeir taki ekkert eftir því, hvaða stefna er mótuð í leiðinni, skýrt og afmörkuð. T. a. m. hæstv. ráðherrar, sem telja sig Sjálfstfl.-menn, hafa ekki tekið eftir því, að hér er snúið þvert af leið frá þeirri stefnu sem Sjálfstfl. hefur samþykkt og haldið fram frá upphafi. Það getur vel verið að Blönduvirkjun hafi villt svo um fyrir hæstv. landbrh. að hann taki ekkert eftir þeim boðskap, sem fylgdi þessu, og þeirri stefnu sem uppi er. Stefnumörkun er skýr og ákveðin og ekkert hefur verið dregið í land um hana frá því sem hæstv. orkuráðh. talaði hér fyrir málinu við 1. umr. Má ég — með leyfi hæstv. forseta- rifja upp tvo stutta kafla úr þessari stefnumótun. Hann segir svo, hæstv. orkuráðh.:
„Því er í grg. með frv. gert ráð fyrir að farið verði með gát í uppbyggingu orkufreks nýiðnaðar og áhersla lögð á að tryggt verði virkt íslenskt forræði, m. a. með því að leggja í fyrstu áherslu á þá kosti að öðru jöfnu sem minni eru í sniðum og viðráðanlegastir. Höfuðáhersla verði lögð á slíka miðlungsstóra iðnaðarkosti eða sem svarar til 400–500 gwst. í orkunotkun fram undir lok þessa áratugar. Verði síðan til álita að ráðast í stærri fyrirtæki, en þá verður sérstaklega að gæta að traustum markaði og staðgóðri tækniþekkingu sem við Íslendingar getum haft vald á.“
Hvað skyldi þetta merkja? Hvað skyldi það merkja að ætla sér að nota 400–500 gwst. fram undir lok þessa áratugar í miðlungsstóra iðnaðarkosti? (Iðnrh.: Hver þeirra 400–500 gwst.) Sem svarar til 400–500 gwst. í orkunotkun fram undir lok þessa áratugar. Ég hef þetta orðrétt upp úr ræðu hans, vélritað, en mér heyrist að hv. 12. þm. Reykv. kannist betur við orðalagið og innihald þessa máls heldur en jafnvel orkuráðh. sjálfur. Skyldi þó aldrei vera að þetta hafi verið kokkað af hv. 12. þm. Reykv. ásamt nokkrum öðrum. Ég á eftir að spyrja hann seinna, þennan hv. þm., að því og hann getur svarað því þegar hann fær orðið — það getur meira að segja vel verið að ég gefi honum það þegar þar að kemur — hvað hann hafi átt við þegar hann minntist á upplagðar stóriðjubyggingar SÍS á Reyðarfirði. Og má ég spyrja hæstv. orkuráðh. hvort honum sé kunnugt um að slíkir möguleikar hafi verið athugaðir eða hvort samningar standi þá um það við Samband ísl. samvinnufélaga og hvað eiginlega sé í bígerð í því efni? Mér er vel kunnugt um hvað mótaði viðhorf Framsfl. til tillagnagerðar um stóriðju í Reyðarfirði á sínum tíma. Mér er manna best kunnugt um það.
Árið 1973 flutti ég fyrst till. um Fljótsdalsvirkjun og stóriðju í Reyðarfirði, og það er hægt að fletta upp á ræðum Eysteins Jónssonar frá þeim tíma og hv. þm. Helga Seljans. Ég endurflutti þessa till. mína eftir að ríkisstj. Framsfl. og Sjálfstfl. hafði tekið við völdum, og hún strandaði á því, að Framsfl. hafnaði með öllu að í síðari tillgr. væri ákvæði um að stefnt skyldi að stóriðju í Reyðarfirði. Og hún fékkst samþykkt, fyrri grein þessarar till., eftir að ég hafði fellt niður ákvæðið um stóriðjuna. Af hverju? Af því að Framsfl. vildi ekki slíka uppbyggingu í kjördæmum þar sem hann hefur haft tögl og hagldir um aldir alda, að segja má. (ÓÞÞ: Ja, gamall er flokkurinn.) Hv. 5. þm. Vestf. ætti að stórvara sig á því í sínu sæti að ávarpa forseta sinn meðan hann stendur í þessum stól.
Og það er eins og þetta, sem hv. 12. þm. Reykv., Guðmundur G. Þórarinsson, kvað hafa sagt hér á næturfundi um hið upplagða málefni fyrir SÍS að vinna að, byggingu iðjuvers í Reyðarfirði, — það er eins og það rifji eitthvað upp fyrir mér af þessu sem ég reyndi í „den tid“ í þessum efnum. Það skyldi þó aldrei vera að Framsfl. hugsi til þess, að hann gjarnan vildi halda áfram í járngreipum atvinnulífi um Austurland, þar sem aðeins hefur tekist að kalla má á einum stað svo að um muni, í Neskaupstað, að brjótast undan því? Það kynni þó ekki að vera að menn hafi uppi hugmyndir eins og þessar? Framsfl. er dauðhræddur við alla slíka nýja uppbyggingu. Hann vill bara að menn taki út í gegnum sjálfa sig í hægðum sínum í kaupfélaginu sínu. Hann veit að ef menn fara að strjúka um frjálst höfuð hætta þeir að vera framsóknarmenn. (Gripið fram í.) Má ég vitna til þess sem er orðrétt ritað eftir hæstv. orkuráðh. í framsöguræðu hans fyrir þessu frv. og hefur verið lesið saman, þannig að ekkert fer á milli mála hvað um var rætt og hvernig orð hnigu í þessu máli? En enda þótt hver kostur eigi að vera 400–500 gwst. vil ég benda á að það er aðeins 1/3 af stærð Fljótsdalsvirkjunar og eru allir sérfræðingar sammála um það, að ef vel á að vera þurfi að selja sem svarar allt að 150 mw. af afli þeirrar virkjunar ef hún á að standast hagkvæmnikröfur og vera frambætileg til virkjunar. En hér er svo án tvímæla tilkynnt um hina nýju stefnu sem ofan á hefur orðið. Ég leyfi mér að fullyrða — hv. 12. þm. Reykv., Guðmundur G. Þórarinsson, leiðréttir mig þá ef ég fer rangt með — en ég leyfi mér að fullyrða að það sé ómenguð stefna Alþb. í stóriðjumálum sem hér kemur fram. En því vitna ég sérstaklega til þessa hv. þm., að svo er að sjá á ýmsu að hann sé eins og grár köttur inni í þeim herbúðum, þannig að hann kann skil á því, ef ég misfer með eitthvað eða álít eitthvað annað en rétt er í þessum sökum. En hér segir hæstv. orkuráðh., með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar þannig er mörkuð stefnan eins og með þessu frv. um byggingu stórra virkjana norðanlands og á Austurlandi og jafnframt er gert ráð fyrir að þróa hagkvæm fyrirtæki sem Íslendingar geti staðið einir að í flestum tilvikum, þótt ekki sé útilokuð samvinna við útlenda aðila um vissa þætti ef aðstæður bjóða, þá hlýtur að verða til álita að koma upp slíkum fyrirtækjum í viðkomandi landshlutum.
Þetta á ekkert skylt við þær hugmyndir sem stundum heyrast, m. a. hér á hv. Alþingi, að ekki sé skynsamlegt eða hagkvæmt að ráðast í stórvirkjanir eins og þær, sem hér er leitað heimildar fyrir, nema þeim fylgi orkufrekur iðnaður í verulegum mæli. Slík nauðhyggja er í senn fáránleg og engum til góðs, því að öllum ber saman um að hér sé um að ræða álitlegustu virkjunarkosti landsmanna hvað hagkvæmni snertir, þótt aðeins sé hugsað um framleiðslu fyrir hinn almenna markað.“
Í þau 10 ár, sem áhugi minn hefur beinst að Fljótsdalsvirkjun, hef ég engan sérfræðing hitt sem ekki hefur fullyrt að Fljótsdalsvirkjun standist ekki nema verulegum hluta af orku hennar sé varið til stóriðju. Og þó er það áberandi í dag, að þeir taka enn dýpra í árinni að þessu leyti. Þeir fullyrða að hún komi ekki til álita nema hægt sé að selja allt að sem svarar 150 mw. afli til stóriðju. Og ég bið nú hæstv. orkuráðh. að kalla til þann sérfræðing í þessum málum sem heldur öðru fram eða getur leitt rök að einhverju öðru, bara eitt nafn, einhvern mann úr einhverjum af þeim stofnunum sem hafa fengist við þetta mál. Ég fer ekki fram á meira, — einn einasta sérfræðing sem heldur því fram og treystir sér til þess að leiða að því rök, að Fljótsdalsvirkjun standist eins og nú standa sakir án þess að varið sé verulegu af afli hennar til stóriðju.
Sú stefna, sem hér birtist, má heita um langa hríð dauðadómur yfir Fljótsdalsvirkjun. Þetta er ekki álit mitt. Þetta er álit allra þeirra sérfræðinga sem um þetta mál hafa vélt. Hv. þm. og þeir, sem setja nú upp merkið og stefnuna, ættu að tala við þá sjálfir og ganga úr skugga um þetta. Og mér er hulin ráðgáta á hvað hæstv. orkuráðh. treystir — að því að ég þykist vita að hugur hans standi mjög til Fljótsdalsvirkjunar og hugur hans standi til þess að fremja ekki pólitískt sjálfsmorð, — þá þætti mér gaman að vita á hvað hann treystir í þessum sökum svo að hann muni samt koma þessari virkjun fram. Er það þá það, að ekki takist samningar við Blöndu? Það verður þá áreiðanlega knúið á um eignarupptöku þar, eignarnám. Hæstv. orkuráðh. hefur í stjórnarsáttmála ákvæði um virkjun utan eldvirkra svæða og vitanlega getur hann haldið sig við það. Og hann lýsti því fyrir tveimur kvöldum að hann mundi gera það. Það hefðu þeir átt að hlýða á sem nú hjálpa honum til við að koma fram þessari stefnu sinni, því að það er þessi stefna — og það er meginatriði — sem kemst fram með því að þetta frv. er samþykkt. Það eru ekki nokkrar línur í lagafrv. sem skipta höfuðmáli hér, sú uppsöfnun af girnilegum virkjunarkostum. Það hefði verið hægt að halda þeim áfram til þess að gleðja augu hv. 12. þm. Reykv. sem dáðist að þessu. Það, sem skiptir höfuðmáli, er stefnan sem mótuð er með þessu, sem færir okkur heim sanninn um að þetta er hurðarlaust með öllu. Það vantar allan grundvöll fyrir þessum virkjunum, sem hér eru teknar upp, og hann mun aldrei finnast meðan stóriðjustefna Alþb. ræður ríkjum og hæstv. orkumálaráðh. — ég get því miður ekki komið mér að því að óska honum til lukku með það — er í þann veginn að fá þessa stefnu sína staðfesta af hinu háa Alþingi. Um þetta þýðir ekkert að deila. Hv. þm. þekkja það líklega að greinargerðir og framsaga með frv., stefnumótandi frv., liggur til grundvallar öllu málinu. Ég vona að menn þræti ekki um það. Og sú stefna, sem nú er uppi, á ekkert skylt við þær hugmyndir sem hér hafa heyrst um uppbyggingu á stóriðju. Hún á ekkert skylt við það. Hún er svo öfugu megin við þær hugmyndir að hún setur gersamlega fótinn fyrir það, að við höfum nokkur efni á og tök á að ráðast í þær virkjanir sem hér er verið að leita heimilda til.
Ef menn trúa mér ekki, þá er hér ræða hæstv. orkuráðh. Eins og ég sagði kann að vera að mönnum sjáist yfir hana í áhuganum, hinum brennandi áhuga manna á hinum einstöku virkjunum. En það er samt hún sem skiptir höfuðmáli. Það er á grundvelli hennar sem þessar framkvæmdir ættu að byggjast. Ég fullyrði að nái hún fram, sem allar líkur eru á nú, þá er gersamlega óþarft að vera að veita hæstv. ríkisstj. þessar heimildir vegna þess að hún getur ekki notfært sér þær.
Ein er sú virkjun sem hefur töluvert mikla sérstöðu. Enda þótt ég dragi fullkomlega í efa að Blönduvirkjun og einhver umsvif, sem skipta máli við Sultartanga eða við Suðurlandsvirkjanirnar, standist nema því fylgi veruleg tilþrif og uppbygging stóriðju, þá er þó svo um Fljótsdalsvirkjun að hún hefur nokkra sérstöðu því að hún er alveg dauðadæmd án þess, enda hafa Austfirðingar fyrir allnokkru komið auga á þetta og gert sínar samþykktir. Og ég vil — með leyfi hæstv. forseta — vitna til þeirrar hinnar síðustu, sem Samband sveitarfélaga á Austurlandi gerði á aðalfundi sínum á Vopnafirði hinn 23. ágúst s. l. Þessi ályktun var einróma samþykkt og hljóðar svo:
„Fundur SSA um orkumál, haldinn á Vopnafirði 23. ágúst 1980, lýsir ánægju sinni með samstöðu þm. Austurlands í virkjunar- og atvinnumálum fjórðungsins.“ Við eigum vafalaust eftir að ræða um það, hver brást í þeirri samstöðu, þegar við mætum á næsta aðalfundi þess sambands. Ég les áfram:
„Fundurinn vill leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
1. Virkjunarmál: Til að nálgast þau markmið SSA, að í fjórðungnum sé til staðar nægileg orka við sem mestu öryggi og við sem lægstu verði, er virkjun í fjórðungnum grundvallaratriði.
2. Orkufrekur iðnaður: Fundurinn telur nauðsynlegt að nú þegar verði hafinn undirbúningur að orkufrekum iðnaði í fjórðungnum.“ — Ég veit að félagar mínir, hv. Austfjarðaþm., kannast við áskoranir til okkar um að flytja tillögur hér á hinu háa Alþingi sem mundu hrinda fram þessum þeirra vilja. Síðan var enn samþykkt svohljóðandi till. á þessum aðalfundi, með leyfi hæstv. forseta:
„Aðalfundur SSA, haldinn á Vopnafirði 21.–22. ágúst 1980, ítrekar og áréttar tillögur aðalfundar SSA 1979 um orkumál. Jafnframt lýsir fundurinn stuðningi sínum við fram komna samþykkt sveitarstjórna á Reyðarfirði og Eskifirði, dags. 20. ágúst 1980, um orku- og atvinnumál.“ Og um hvað skyldi sú samþykkt hafa snúist í höfuðatriðum? Um sameiningu atvinnumálanefnda þessara staða um það að skora á stjórnvöld og alþm. að beita sér fyrir stóriðju á Reyðarfirði, sem við töldum allir þm. þá stórkostlegan ávinning, að þessir staðir höfðu orðið sammála um mikið átakamál í heilan áratug.
Í gær, hinn 20. maí 1981, kom stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi saman og gerði svofellda samþykkt:
„Stjórn SSA vísar til samþykktar aðalfundar sambandsins 1980, leggur þunga áherslu á þau sjónarmið, sem þar koma fram, og skorar á þm. kjördæmisins að vinna einarðlega að framgangi þeirra.“
Hvernig er þá framhaldið? Hvernig verða menn nú við þessari áskorun þegar þetta frv. hefur orðið að lögum á Alþingi með sínum fylgifiskum, með hinni gerbreyttu stefnu sem boðar að grundvöllur að virkjun í Fljótsdal er brostinn með stefnu núv. hæstv. ríkisstj., — stefnu sem Alþb. hefur fengið framgengt, — stefnu sem sjálfstæðismenn í ríkisstj. leyfa sér að fallast á og gera að sinni, sem er þverbrot á stefnu Sjálfstfl., þverbrot á þeirri stefnu sem þeir gengu undir til kosninga síðast og voru valdir á hið háa Alþingi eftir?
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram eftirfarandi till. ásamt með hv. 5. þm. Suðurl., Magnúsi H. Magnússyni. Þessi till. er við 2. gr. og er um að á eftir 2. mgr. komi ný mgr. er hljóði svo — en 2. mgr. er breytt, hún breyttist við 2. umr.:
„Ríkisstj. skal þegar leita eftir samningum um sölu raforku til orkufreks iðnaðar með stóriðju staðsetta í Reyðarfirði fyrir augum.“
Nú hefur Sjálfstfl. boðað í sínum lagafrv. stefnu sína um uppbyggingu stóriðju víðar en þarna, en fyrir því er fallist á að láta við það sitja að flytja þessa till. eina af hálfu flokksins við 3. umr. að Austurland og Fljótsdalsvirkjun hefur sérstöðu. Hún hefur þá sérstöðu, að alger forsenda virkjunarinnar er uppbygging stóriðjunnar í Reyðarfirði. Við höfum þegar stórvirkjanir hér á Suðurlandi og það er hægt að vinna að framgangi virkjana þar án þess að stórt sé lagt undir í stóriðju. Og það er talið upp á að jafnvel Blanda standist með árunum enda þótt um verulega stóriðju yrði ekki að tefla, heldur orku til almennrar notkunar. Þó eiga eftir að líða mörg ár þangað til það verður, ef menn halda sig við þá stefnu sem nú e: mörkuð, hina nýju stefnu, hina nýju afturhaldsstefnu í þessum málum.
Því miður hafa orðið hér hin grófustu mistök. Því miður hefur mönnum urðið það á, þeim sem maður hefði þó haldið að helst gætu snúist til varnar, — þeim hefur orðið það á að fallast á gerbreytta stefnu, — stefnu sem mun leiða til þess að við missum af hinum gullnu tækifærum til stórkostlegra framfara, til stórkostlegra lífskjarabóta. Ég treysti því hins vegar og vona, að fljótlega renni upp þeir dagar að tekið verði til á nýjan leik við þar sem frá var horfið og hafin uppbygging iðjuvera og að við náum tökum og möguleikum á því að nýta þessar feiknalegu orkulindir okkar, uppbyggingu þessa lands og framtíð til blessunar.