22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4944 í B-deild Alþingistíðinda. (5276)

320. mál, raforkuver

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Eins og fram hefur komið hér í máli hv. 3. þm. Austurl. og svo hins vegar hæstv. iðnrh. ber þeim ekki saman um það sem hv. 3. þm. Austurl. sagði að búið væri að semja um. Þess vegna sé ég fulla ástæðu til þess að samþykkja þessa brtt. og segi já.