22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4946 í B-deild Alþingistíðinda. (5282)

245. mál, útvarpslög

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Sú afgreiðsla, sem n. lét frá sér fara á þessu máli, reyndist ekki að öllu leyti vera í samræmi við eðli þingvenja og var því breytt og þannig er það nú orðið. Það er misskilningur að ég hafi skrifað undir það í þeirri mynd. Hitt er rétt, að ég nennti ekki að fara að snúast gegn þessu með því að vera með sérálit í n., þar sem mér virðist málið þokast áfram — með hraða brekkusnigilsins að vísu — og sýnir það að nokkru leyti viðhorf manna til m. a. sjómannastéttarinnar, að þeir telja litla þörf á að flýta sér í þessum efnum og hirða lítt um það, þó að búið sé að afgreiða mál hliðstæð þessu bæði í Noregi og Danmörku og það verk, sem þarf að vinna, sé fyrst og fremst lögfræðinga, en ekki nm., því að hér er ekki um nein tæknileg vandamál að ræða. Vilji er allt sem þarf.