22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4947 í B-deild Alþingistíðinda. (5287)
322. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég gerði aths. við það þegar hitt frv. var sent til fjh.- og viðskn. Ég tel að miðað við þær reglur, sem við höfum hér á þingi, eigi þetta mál ekki erindi til fjh.- og viðskn. Ég held að við séum allir sammála um það, að ef um er að ræða iðnaðarmál, þá eigi það ekki að fara til sjútvn. eða landbn. Til þess erum við að hafa nefndir í vissum málum, að það er ætlast til að það, sem tilheyrir hverju og einu, t. d. í þessu tilfelli landbúnaði, þá eigi það að fara til landbn., þó að það skipti ekki miklu máli í þessu tilviki vegna þess að auðvitað verður ekki um að ræða neina fundi í nefndum hér eftir, það vita allir. En það er af „prinsip“-ástæðum sem ég mótmæli þessu.