22.05.1981
Neðri deild: 107. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4947 í B-deild Alþingistíðinda. (5288)

322. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Vegna orða hv. formanns landbn. Nd. um það, að hann vilji gjarnan fá þetta mál til úrlausnar í sinni nefnd, þykir mér full ástæða til að draga till. mína til baka um að vísa þessu máli til fjh.- og viðskn. og æski þess, að hv. þm. sjái um að þetta mál fái sómasamlega og góða meðferð í landbn. og landbn. og fjh.- og viðskn. vinni saman að þessu máli. Þá er ég sannfærður um að þetta mál fær góða lausn. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Valgeirssyni fyrir þennan ágæta stuðning og áhuga hans og vænti þess, að við getum verið samferða um lausn á þessu máli.

Herra forseti. Ég geri það að till. minni, að frv. verði vísað til hv. landbn. Nd.