22.05.1981
Neðri deild: 108. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4948 í B-deild Alþingistíðinda. (5293)
314. mál, stálbræðsla
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um stálbræðslu, en mál þetta hefur legið fyrir Ed. sem hefur um það fjallað og afgreitt það til hv. Nd. Þetta frv. gerir ráð fyrir heimild fyrir ríkisstj. til að gerast eignaraðili að Stálfélaginu hf. og leggja fram í því skyni allt að 40% af hlutafé þess, en gert er ráð fyrir að afgangur hlutafjár fáist með almennu hlutafjárútboði. Að þessu leyti er þetta frv. efnislega svipað og frv. um steinullarverksmiðju.
Ég ætla ekki hér að hafa langt mál um þetta frv., um þessa verksmiðju, en legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.