22.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4949 í B-deild Alþingistíðinda. (5302)

332. mál, íþróttafulltrúi ríkisins

Fyrirspurnin er þannig:

„Fram hefur komið í fjölmiðlum að Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi ríkisins hafi sagt stöðu sinni lausri og hættir hann störfum 1. júní n. k. Staðan hefur ekki verið auglýst til umsóknar, en aðeins ráðið í hana til bráðabirgða.

Hvaða ástæður liggja því til grundvallar, að staðan er ekki auglýst?

Er von á skipulagsbreytingum í ráðuneytinu?

Ef svo, hverjar eru þær?

Óskað er skriflegs svars.“

Þorsteinn Einarsson, sem gegnt hefur starfi íþróttafulltrúa síðan 1941, er sú staða var stofnuð, fór þess á leit með bréfi, dags. 27. febrúar s. l., að verða leystur frá starfinu frá 1. júní 1981, en hann verður sjötugur 23. nóvember n. k. Í bréfi, dags. 9. mars s. l., tók hann fram að uppsögnin næði einnig til starfs deildarstjóra í íþrótta- og æskulýðsmáladeild ráðuneytisins, en í það embætti var Þorsteinn skipaður frá 1. maí 1978 að telja, þegar nefnd deild var mynduð í ráðuneytinu, og gegndi íþróttafulltrúastarfinu jafnframt.

Var Þorsteini að eigin ósk veitt lausn frá störfum þessum 29. apríl 1981 frá 1. júní n. k. að telja.

Þegar Þorsteinn Einarsson fékk lausn frá störfum sínum var Reynir G. Karlsson, æskulýðsfulltrúi, settur deildarstjóri í íþrótta- og æskulýðsmáladeild ráðuneytisins og honum jafnframt falið að gegna starfi íþróttafulltrúa um sinn.

Þess má geta, að engin ákvæði eru um það, hvenær staða þessi skuli auglýst, og verður henni um sinn gegnt eins og áður af deildarstjóra íþrótta- og æskulýðsmáladeildar ráðuneytisins. Verður það að teljast æskilegt fyrirkomulag að deildarstjóri íþróttadeildar ráðuneytisins sé jafnframt íþróttafulltrúi í skilningi íþróttalaga, enda hefur sú skipan gefist vel, eftir að hún var upptekin, og ekki vitað að neinn hafi fundið að þeirri skipan. Æskilegt væri að slíkt fyrirkomulag yrði lögfest. Verður það atriði kannað nánar og í því sambandi leitað samráðs við aðila, sem telja má að eigi hér mestan hlut að máli, s. s. Íþróttasamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og íþróttanefnd.