23.05.1981
Efri deild: 122. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4963 í B-deild Alþingistíðinda. (5307)

320. mál, raforkuver

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Frv. það til l. um raforkuver, sem hér er til umr., er án efa eitt af stærstu málum sem lögð hafa verið fyrir Alþingi um mörg ár. Þær framkvæmdir, sem gert er ráð fyrir að framkvæma samkv. þessu frv., eru sennilega þær kostnaðarmestu og yfirgripsmestu sem samþykktar hafa verið á Alþingi, e. t. v. um alla tíð. Til marks um það, hvað þessar framkvæmdir eru yfirgripsmiklar, er gert ráð fyrir að heildarstofnkostnaður Blönduvirkjunar verði um 17.4 milljarðar gkr., Fljótsdalsvirkjunar 176.2 milljarðar og Sultartangavirkjunar 108.6 milljarðar, en þessar þrjár virkjanir munu eiga að kosta 362.2 milljarða gkr. Síðan eru ýmsar fleiri framkvæmdir sem gert er ráð fyrir í frv. eins og öllum hv. þm. er kunnugt um.

Ég vil taka undir það sem komið hefur fram hér í ræðum manna, að um svona stórmál sé æskilegt að hafa sem víðtækasta samstöðu á Alþingi vegna þess að þau verða ekki framkvæmd nema á löngum tíma og það er ekki alveg öruggt, þó að ég óski núv. hæstv. ríkisstj. langra lífdaga, að hún verði við völd meðan framkvæmdir samkv, þessu frv. verða framkvæmdar. Þess vegna kallar það á að það sé sem víðtækust samstaða á Alþingi um svona mál.

Samkv. 1. gr. þessa frv. er Landsvirkjun heimilt að fengnu samþykki ríkisstj. að stækka Hrauneyjafossvirkjun í allt að 280 mw. afl, að stækka Sigölduvirkjun í allt að 200 mw. afl, að gera ráðstafanir sem nauðsynlegar þykja til að tryggja rekstur orkuveranna á Þjórsársvæðinu og koma vinnslugetu þeirra í eðlilegt horf, m. a. með Kvíslaveitu, stækkun Þórisvatnsmiðlunar og stíflu við Sultartanga, að virkja á ármótum Þjórsár og Tungnaár við Sultartanga, Sultartangavirkjun, með allt að 130 mw. afli. Ríkisstj. er og heimilt að semja við Landsvirkjun m. a. um að reisa og reka eftirtaldar vatnsaflsvirkjanir, uns þeir samningar hafa tekist skulu Rafmagnsveitur ríkisins hafa með höndum rannsóknir, hönnun og undirbúningsframkvæmdir í nánu samráði við Landsvirkjun: Virkjun Blöndu í Blöndudal, Blönduvirkjun, með allt að 180 mw. afli, virkjun Jökulsár í Fljótsdal, Fljótsdalsvirkjun, með allt að 330 mw. afli, virkjun Héraðsvatna við Villinganes, Villinganesvirkjun, með allt að 40 mw. afli. Fleiri heimildir eru og í 1. gr. frv.

Um það mál, sem mikið er rætt og ritað, í hvaða röð eigi að ráðast í þessar framkvæmdir, þá er gert ráð fyrir því í 2. gr. frv., en 1. og 2. gr. frv. breyttust nokkuð í meðförum Nd. og það er til bóta að mínu mati, — þá er gert ráð fyrir því, að áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdaröð af Alþingi skuli liggja fyrir greinargerðir frá Landsvirkjun, Orkustofnun, Rafmagnsveitum ríkisins og öðrum þeim aðilum, sem ríkisstj. kveður til, um þjóðhagslega hagkvæmni virkjunarleiða og þýðingu þeirra fyrir raforkukerfi landsins. Ég álít, að það séu aðallega tvö sjónarmið, sem þarna komi til greina og hljóti að ráða úrslitum um röðun. Það er í fyrsta lagi þjóðhagsleg hagkvæmni og það eru í öðru lagi öryggissjónarmið. Ég held að þeirri skoðun hafi vaxið fylgi á seinni árum, að það sé skynsamlegt og nauðsynlegt fyrir þjóðina að virkja eða reisa stórt orkuver utan eldvirku svæðanna og það geti verið varhugavert að hafa ekki varaafl til ef eitthvað það gerist á svæði Þjórsár sem hefur truflandi áhrif á orkuverin þar.

Til þess að gera sér grein fyrir hvaða stefnumörkun í virkjunarmálum felst í þessu lagafrv. vísa ég í fyrsta lagi til þess, sem segir í grg., að framkvæmdatíminn sé 10–15 ár, og til áréttingar á þessu, að samkomulag varð um það í ríkisstj. að stefnt sé að því að ljúka framkvæmdum samkv. frv. á 12 árum. Þetta er ótvíræð stefnumörkun í þessum málum og gefur að sjálfsögðu til kynna hver hraðinn þarf að vera til þess að þetta sé unnt. Og það er ekki að mínu mati rétt hjá hv. stjórnarandstæðingum, að það felist ekki stefnumörkun í málinu. Það er ekki rétt. Þetta er aðalviðmiðunin sem þarna er um að ræða.

Ég er þeirrar skoðunar, að það sé ekki hyggilegt með tilliti til okkar hagkerfis og ástands í efnahagsmálum að hafa öllu meiri hraða á en hér er stefnt að. Ég hef rætt um það við ýmsa málsmetandi menn og þeir eru mér sammála í því efni. Ég held t. d. að það sé of mikill hraði að ljúka þessum virkjunaráformum, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., á 8 árum, það mundi beinlínis skapa of mikla þenslu í okkar efnahagskerfi því að hér eru gífurlegar framkvæmdir. (ÞK: Hvaða frv. áttu við?) Ég á við þær mismunandi áherslur sem menn hafa lagt á í sambandi við hraða þessara virkjanaframkvæmda. (Gripið fram í.) Ég veit það. Sjálfstfl. hefur talað um 10 ár. En ég dreg það í efa að það sé skynsamlegt að hafa meiri hraða á varðandi þessar framkvæmdir allar heldur en 12 ár. Ég dreg það í efa.

Í öðru lagi segir um stefnumörkunina í þessu frv. á bls. 4, með leyfi hæstv. forseta, að eðlilegt sé að landsmenn setji sér það markmið að jafna orkureikninginn gagnvart útlöndum fyrir lok aldarinnar, sumpart með framleiðslu á eldsneyti hér innanlands eftir því sem hagkvæmt getur talist og með tilliti til öryggis í orkumálum svo og með útflutningi orkufrekra afurða til gjaldeyrisöflunar. Með þessu væri jafnframt náð því markmiði, að þjóð, sem býr ríkulega að orku að tiltölu við fólksfjölda eins og Íslendingar, gangi ekki á orkuforða annarra þjóða. Hér er einnig viðmiðun. Það er alveg rétt hjá hv. þm. Agli Jónssyni, að það er ekki ein viðmiðun, sem þarna er um að ræða. Þetta er ekki aðeins neglt í frv., þetta er geirneglt. (EgJ: Lestu svolítið ofar á bls.) Hér er alveg greinileg viðmiðun í þessum efnum varðandi hraðann og varðandi þá stefnu sem felst í þessu frv. Auðvitað verður að meta stefnuna, sem felst í frv., með tilliti til þess, sem segir í grg., og þess, sem frá ríkisstj. kemur um málið.

Þá er það merkilegt við þetta frv., sem hæstv. iðnrh. hefur raunar gert að umræðuefni og kemur fram í grg. fyrir frv., að hér er í fyrsta sinn leitað lagaheimildar fyrir meiri háttar virkjun utan Suðvesturlandsins. Eins og ég hef áður tekið fram er það að mínu mati mjög hyggileg stefna með tilliti til öryggis í þessum þýðingarmiklu málum. Það er engin spurning um það, að dreifing stórra virkjana um landið eykur öryggi í orkumálum og hringtenging landsins eða samtenging orkuveranna nýtir betur hina mismunandi eiginleika íslenskra fallvatna til orkuframleiðslu.

Það hefur verið rætt talsvert í þessum umr. um orkufrekan iðnað, og það fer auðvitað ekkert á milli mála að það er gert ráð fyrir honum í þessu frv., eins og ég var raunar að lesa áðan úr grg. fyrir frv. Ég hafði fyrir mitt leyti áður gert grein fyrir þeirri heildarstefnu sem ég álít að sé skynsamleg í þessum málum á næsta áratug og áratugum, og hér eru menn auðvitað að hugsa um alllangan tíma. Það verður að hafa í huga þegar þessi mál eru rædd.

En varðandi orkufrekan iðnað hefur komið til tals talsvert um orkufrekan iðnað á Austurlandi. Þar hafa viðhorf manna í þeim efnum mjög breyst frá því sem var fyrir tiltölulega fáum árum. Menn hafa miklu meiri áhuga á orkufrekum iðnaði þar eystra heldur en var fyrir stuttu. Í því sambandi er þó rétt að geta þess, að mönnum er auðvitað ljóst að ef slíkur orkufrekur iðnaður er of stór getur það leitt til byggðaröskunar, og þess vegna er það að menn hafa í huga orkufrekan iðnað af þeirri stærð sem samrýmist þeim staðháttum sem eru á Austurlandi.

Þegar þetta mál var til meðferðar í ríkisstj. bar ég fram till. um að við fyrri áfanga Fljótsdalsvirkjunar verði gert ráð fyrir orkufrekum iðnaði á Austurlandi og að það kæmi fram í grg. fyrir frv. Með því að iðnrh. féllst á að láta efni þessarar till. koma fram í framsöguræðu á Alþingi samþykkti ég að standa að framlagningu málsins.

Ég legg mikla áherslu á það, að þegar virkjunarkostirnir þrír, þ. e. Fljótsdalsvirkjun, Blanda og Sultartangavirkjun, verða bornir saman, þá fylgi Fljótsdalsvirkjun orkufrekur iðnaðarkostur á Austurlandi sem sjálfsagt verður staðsettur á Reyðarfirði. Ég óttast það og hef látið þá skoðun í ljós áður, að ef svo yrði ekki væri Fljótsdalsvirkjunin nánast úr leik í fyrstu lotu. En það kemur auðvitað í ljós þegar þessir kostir verða bornir saman.

Ég vil að lokum — og skal ekki lengja mál mitt mikið — gera í örstuttu máli grein fyrir stefnu Framsfl. í þessum þýðingarmiklu málum í aðalatriðum.

Þá er það í fyrsta lagi, að Framsfl. leggur á það höfuðáherslu að stefnt verði að því að orkukostnaður um allt landið verði jafnaður og í því skyni lögð áhersla á að tengja saman raforkukerfi einstakra landshluta og tryggja þannig sem hagkvæmastar framkvæmdir og rekstur með samkeyrslu allra orkuvera og dreifikerfa. Þetta er undirstöðumál í okkar stefnu. Og þegar orðið er ástatt í orkumálum eins og nú er og öllum er orðið ljóst, þá er það alveg öruggt og áreiðanlegt, að ef orkuverðið er misjafnt svo að einhverju nemur í landinu, þá hlýtur það að hafa í för með sér byggðaröskun í talsvert stórfelldum mæli þegar tímar líða. Ég álít því að það sé undirstöðuatriði að orkuverðið sé svipað um allt landið. Og ég álít að þeir, sem viðurkenna ekki það sjónarmið, séu ja, ég vil segja: ójafnaðarmenn, hreinlega ójafnaðarmenn, og ekki hægt að ætlast til þess að menn geti búið við mikinn mismun í þessum efnum. Hann er býsna mikill í dag og skal ég ekki fara út í það við þetta tækifæri. En þetta er grundvallaratriði í stefnu okkar framsóknarmanna varðandi orkumál.

Í öðru lagi leggjum við áherslu á það, að unnið verði að því að koma á fót einu fyrirtæki sem annist alla meginraforkuvinnslu og flutning raforku á milli landshluta og ríkisstj. taki í þessu skyni upp samninga við Landsvirkjun og Laxárvirkjun, Andakílsárvirkjun, Rafveitu Vestmannaeyja, Rafveitu Siglufjarðar og aðrar rafveitur, sem eiga og reka orkuver, um sameiningu slíks rekstrar í einni landsveitu og aðilar að þessu fyrirtæki og stjórn þess verði ríkissjóður og landshlutaveitur. Hef ég þá svarað þeirri fyrirspurn sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson lagði fyrir mig áðan, hvernig við hugsum okkur þetta. Við teljum að þessar framkvæmdir séu svo risavaxnar á okkar mælikvarða að nauðsynlegt sé að það sé einn stór og sterkur aðili sem að þessu standi, en þá fái menn aðild að því máli, sveitarfélög, landshlutar o. s. frv.

Í þriðja lagi teljum við að það þurfi að koma á fót landshlutaveitum sem annist alla dreifingu og sölu á raforku í viðkomandi landshluta og landshlutaveitur þessar geti einnig annast rekstur hitaveitna, þær sjái um framkvæmdir sem nauðsynlegar eru vegna viðkomandi rekstrar.

Þetta eru helstu atriðin í stefnumörkun okkar framsóknarmanna í orkumálum. Það eru auðvitað mörg fleiri atriði sem þarna koma til álita, en ég nefni þessi sérstaklega við þetta tækifæri.

Að lokum vil ég svo ljúka máli mínu með því að vísa til samþykktar sem gerð var á aðalfundi miðstjórnar Framsfl. 5. apríl s. l. Hún er svohljóðandi með leyfi hæstv. forseta:

„Auka þarf framkvæmdir í orkumálum til eflingar atvinnulífsins og vegna stórhækkaðs verðs á olíu. Á næstu tíu til tólf árum verði ráðist í nýjar virkjanir í Blöndu, Fljótsdal og við Sultartanga. Jafnframt verði unnið að hagnýtingu háhitasvæðanna. Raforka þessara virkjana á að mæta almennri þörf landsmanna sem sífellt fer vaxandi, en auk þess skal hún hagnýtt á hvern þann hátt sem hún með arðbæru móti getur komið í stað innfluttrar orku og einnig sem grundvöllur að auknum iðnaði í landinu, þ. á m. orkufrekum iðnaði. Í þessu sambandi vísast til samþykktar 17. flokksþings og ítarlegra ályktana seinasta miðstjórnarfundar um orkumál.“

Ég taldi rétt við þetta tækifæri að rifja upp höfuðatriðin í stefnu Framsfl. í þessum málum, þessum stóru málum og þessum þýðingarmiklu málum, vegna þess að þau eru svo mjög til umræðu í þjóðfélaginu, bæði hér á hv. Alþingi og í fjölmiðlum um þessar mundir, sem eðlilegt er þegar verið er að fjalla um þessi mál hér á Alþingi.