23.05.1981
Neðri deild: 109. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4984 í B-deild Alþingistíðinda. (5321)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vildi gera hér örstutta aths. í sambandi við dagskrá eða þingsköp. Ég hef ekki lagt í vana minn að gera það og mér er fullkomlega ljóst að á herðum forseta þessarar hv. deildar hefur hvílt að undanförnu ærinn vandi í sambandi við dagskrá og afgreiðslu mála og allt það málaflóð sem hefur þurft að afgreiða hér. Enginn taki mál mitt svo að í því felist annað en viðurkenning á hæstv. forseta þessarar deildar fyrir hvort tveggja röggsama og réttláta fundarstjórn. Það stenst sannarlega.

En ég er nokkuð undrandi á því, að hér er 226. mál, á þskj. 447, frv. til l. um atvinnuréttindi útlendinga. Það er lagt hér fram af hæstv. félmrh. Það kemur strax fram við 1. umr. að dómsmrh. hefur nokkrar aths. við þetta frv. Út af fyrir sig er ekkert við því að segja þó að rekist á mismunandi skoðanir ráðh. í ríkisstj. En aths. dómsmrh. eru á þann veg að tengja atvinnuleyfi dvalarleyfum sem Útlendingaeftirlitið veiti o. s. frv.

Félmn. hefur lagt sig fram um að samræma þessi sjónarmið. Ég hef sem nm. vikið töluvert af braut minna skoðana hér til að koma til móts við aðra nm., og sérstaklega hefur form. n., hv. 1. þm. Vesturl., lagt í það töluvert mikla vinnu að samræma sjónarmið bæði þessara tveggja ráðh. og nm. Hafa verið haldnir nokkrir nefndarfundir til þess að vinna að framgangi þessa máls. Eftir að fullt samkomulag er komið hér í félmn. og málið liggur alveg fullkomlega tilbúið hér til afgreiðslu, samþykkis eða synjunar þessarar hv. deildar, skilst mér að hæstv. dómsmrh. hnippi hér í hæstv. forseta og óski eftir að mál þetta sé tekið út af dagskrá eða ekki tekið á dagskrá. Ég vil undirstrika það, að ég er ekki að gagnrýna hæstv. forseta, og endurtek það. Ég tel hann bæði röggsaman og réttlátan í sinni fundarstjórn. En þarna er um að ræða töluvert mikið áhugamál samtaka, samþykktir sem gerðar hafa verið í verkalýðsfélögum og hafa verið hér töluvert til umr. Og þegar menn leggja sig hér fram í nefndum til að ná samkomulagi og ná samkomulagi sem hæstv. dómsmrh. ætti fullkomlega að geta sætt sig við, þá furðar mig að ráðh. skuli hér kippa slíkum málaflokki út af dagskrá. Með fullri virðingu fyrir hæstv. dómsmrh. og án þess að vera að troða illsakir við hann persónulega verð ég satt að segja að lýsa undrun minni á þessum vinnubrögðum.