23.05.1981
Neðri deild: 109. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4987 í B-deild Alþingistíðinda. (5325)

Umræður utan dagskrár

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Vegna þeirrar umr., sem hér fer fram í sambandi við stjfrv. sem hér hefur verið til meðferðar um atvinnuréttindi útlendinga víl ég leggja áherslu á það, sem hefur verið undirstrikað í þessum umr., að þetta frv., sem er stjfrv., er ekki betur útbúið, þegar það er lagt fram, en hér hefur komið fram í sambandi við ræður hæstv. ráðh.

Ég vil einnig undirstrika það, að þetta frv. var á óskalista ríkisstj. yfir þau mál sem æskilegt væri að kæmust í gegnum þetta Alþingi. Félmn. tók frv. til meðferðar, og eins og fram kom hér við 2. umr. málsins lagði n. mikla vinnu í að reyna að samræma þau sjónarmið sem strax komu fram í ítarlegum umsögnum frá dómsmrn. og lögreglustjóraembættinu í Reykjavík eða Útlendingaeftirlitinu, til þess að reyna að lagfæra frv., bæði vegna þessara aths. og sömuleiðis, eins og kom hér fram við 2. umr., að lagfæra orðalag frv. sem var um sumt ábótavant. Þess vegna kemur mér nokkuð á óvart ef um það er að ræða, eins og mátti skilja á ummælum hæstv. dómsmrh., að það væru einhver atriði sem máli skiptu sem ekki hefði verið tekið tillit til í umsögn þessara aðila. Svo er ekki. Hins vegar get ég tekið undir það, að það er nýtt innlegg í málið ef verið er að samræma slíka löggjöf á Norðurlöndum. Þá er sjálfsagt að taka tillit til þess.

En ég get tekið undir það sem hv. 10. þm. Reykv. sagði. Við gerðum okkur grein fyrir því, að það gætu verið ýmis tormerki á því að þetta mál kæmist í gegnum Alþingi. En allt um það væri það nauðsynlegur hreinsunareldur, ef svo má að orði komast, til þess að alþm. gætu þá kynnt sér það sem helst kæmi til greina að vera ágallar á þessu frv. sem lagfæra þyrfti í báðum deildum þingsins.

Ég stend hér upp aðeins til þess að undirstrika það, að ég tek aðfinnslur hæstv. dómsmrh. hvorki til mín né félmn., eins og þær komu frá hans hendi í umr. nú fyrir skömmu. Ég vil leggja áherslu á þá skoðun mína, að það verður að ætlast til þess, að ríkisstj., sem leggur lagafrv. fyrir Alþingi, sjái til þess, að þau mál séu a. m. k. að frumgerð svo vandlega undirbúin að þau innihaldi það sem mestu máli skiptir. Það verður að vera aðalatriðið. Síðan er það skylda þm. að mínu mati og þingnefnda að taka tillit til þeirra umsagna og þeirra skoðanaskipta, sem um málið koma fram, og reyna eftir fremsta megni að ná samkomulagi um skynsamlegustu breytingar á slíkum lagafrv.