23.05.1981
Neðri deild: 109. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4991 í B-deild Alþingistíðinda. (5333)

314. mál, stálbræðsla

Guðmundur G. Þórarinsson:

Herra forseti. Ég kem hér í ræðustól ef ég gæti aðeins upplýst eitthvað af því sem hv. 1. landsk. þm., Sigurlaug Bjarnadóttir, spurði um. Það er reiknað með að stálverksmiðja muni nota um 10 mw. Það er gert ráð fyrir að steinullarverksmiðja, sú stærri, mundi nýta um 5 mw. En það er gert ráð fyrir að saltverksmiðjan muni framleiða rafmagn sjálf, allt að 10 mw., með gufuhverflum. Hins vegar vil ég vara við því, að menn reikni þetta allt út í aflseiningum eða mw., vegna þess að orkunotkunin skiptir í þessu sambandi meira máli. Það er mismunandi nýtingartími sem þessar verksmiðjur nota þetta afl. Það er gert ráð fyrir að saltverksmiðjan eða sjóefnaiðjan muni á fyrsta stigi, þessi 40 þús. tonna verksmiðja, nota um 10 gwst. á ári, steinullarverksmiðjan muni nota um 40 gwst. á ári, en stálbræðslan um 15. Og til frekari upplýsinga um stálbræðsluna, því sérstaklega var á hana minnst, er í áætlunum gert ráð fyrir að hún greiði 20 mill á kwst. raforku og fái raforkuna þá við spennu sem er einhvers staðar á milli 132 og 220 kw.