25.05.1981
Efri deild: 123. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4993 í B-deild Alþingistíðinda. (5342)
335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra
Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Fyrr á þessu þingi var lagt fram frv. um málefni aldraðra og úrbætur í þeim efnum. Heilbr.- og trn. Nd. tók það frv. til vinnslu og varð niðurstaða n. að taka ákveðna þætti frv. og breyta öðrum og flytja síðan sjálfstætt frv. sem hv. heilbr.- og trn. Nd. stóð öll að.
Fjh.- og viðskn. sömu deildar fékk það frv. síðan til meðferðar og gerði ákveðnar breytingar á tekjuöflun. Það er í þeim búningi sem þessi hv. deild fær frv. til meðferðar.
Það er niðurstaða fjh.- og viðskn. að mæla með samþykkt frv., en einstakir nm. áskildu sér þó rétt til að flytja brtt. og einn þeirra, hv. þm. Kjartan Jóhannsson, hefur flutt sams konar brtt. og flokksmenn hans fluttu í Nd. og þar var felld. Verður sjálfsagt gerð grein fyrir henni hér á eftir. Það er hins vegar skoðun okkar, sem að nál. stöndum að öðru leyti, að rétt sé að fara þá fjáröflunarleið sem varð niðurstaða meðferðarinnar í Nd., a. m. k. að sinni, eins og gert er ráð fyrir í núverandi búningi frv. Síðar gefst tækifæri til þess að endurskoða fjáröflunarkerfið þegar reynsla hefur fengist af því. Ég held að það sé afar nauðsynlegt, til þess að stuðla að hröðum framkvæmdum og úrbótum í málefnum aldraðra í þessu þjóðfélagi, að frv. fái afgreiðslu hér frá Alþingi nú.
Ég mæli því, herra forseti, fyrir hönd n. með því að frv. verði samþykkt þótt menn greini eitthvað á um það, í hvaða formi tekjuöflunin eigi að vera.