25.05.1981
Neðri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5010 í B-deild Alþingistíðinda. (5377)
314. mál, stálbræðsla
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Þrjú lagafrv., sem nú á allra síðustu vikum eða öllu heldur dögum þingsins hafa komið frá hæstv. iðnrh. og manna á meðal eru kölluð S-frumvörp, eiga það öll sammerkt að þm. eru væntanlega sammála um að athugun á þeim hefur verið ónóg í þinginu. Sérstaklega kom þetta fram í umr. um saltverksmiðju, en ég hygg að segja megi að það eigi einnig við um þau tvö frv. sem hér er verið að afgreiða við 3. umr., þ. e. steinullarverksmiðju og stálbræðslu. Um þetta mætti auðvitað hafa fleiri orð sem gengju þá m. a. út á það, að það er löngu orðið tímabært að spyrja þess hér á hinu háa Alþingi, hvers vegna þingtíma er svo háttað sem raun er á. Hér er verið að hespa það af að ljúka Alþingi í lok maímánaðar. Þm. fara svo í leyfi sem standa mun hálfan fjórða mánuð. Það hefur svo sem margoft komið fram hér í umr. og er þess virði að það sé ítrekað eina ferðina enn, að þessi háttur þingstarfa er sniðinn eftir aðstæðum sem eiga ekki lengur við, sem löngu eru liðnar. Þetta er sniðið eftir gömlu landbúnaðarsamfélagi og sýnist raunar vera með öllu ástæðulaust.
Ég skal ekki lengja mál um þessi efni nú. Á þessu hefur margsinnis verið vakin athygli hér áður. En það er áreiðanlega réttmætt að vekja kirfilega á því athygli í sambandi við þessi tvö mál, sem nú eru að fara í gegnum 3. umr., þ. e. steinullarverksmiðju og stálbræðslu. Þetta er ekki sagt þessum mátum til hnjóðs með einum eða öðrum hætti, en það hefur komið fram í umr. hjá mörgum þm., að þeir telja að sá tími, sem hafi gefist til athugunar á þessum málum, hafi verið ónógur með öllu, og það skal ítrekað hér enn við 3. umr. um frv. til l. um stálbræðslu.