25.05.1981
Neðri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5013 í B-deild Alþingistíðinda. (5381)
Umræður utan dagskrár
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Hv. 6. þm. Suðurl. hefur vakið hér máls á vandamálum, sem steðja að landbúnaðinum, og varpað til mín fsp. þar að lútandi, í fyrsta lagi um kal og viðbrögð við kalskemmdum og í annan stað um aðgerðir vegna afleiðinga Heklugossins á s. l. sumri.
Varðandi fyrra atriðið er það rétt, sem fram kom hjá hv. þm., að óvenjuleg svellalög s. l. vetur voru með þeim hætti að flestir sáu að mikil hætta var á köfnunarkali. Nú um þessar mundir eru þessar kalskemmdir að koma í ljós og hafa nú fyrir skömmu komið verulega í ljós á Suðurlandi, þar sem talið er að á sumum svæðum sé allt upp í 50 eða jafnvel 80% túna skemmd af kali. Hvort hér er um kalskemmdir að ræða, sem tekur lengri eða skemmri tíma fyrir náttúruna sjálfa að vinna bug á, skal ekkert um sagt, en vonandi er að hin hagstæða tíð, sem nú er á Suðurlandi og hefur verið þar í vor, verði til þess að auðvelda það að þessar kalskemmdir nái sér að nokkru leyti sem allra fyrst.
Annars staðar um land eru enn ekki komnar miklar fréttir eða öruggar heimildir um kalskemmdir. Þó mun nokkurt kal a. m. k. vera víðar um land og sums staðar er mér sagt að það sé verulegt. Enn þá verður ekki spáð um hversu mikið það er. Ljóst er þó að hér er um viðamikið vandamál að ræða sem veldur tjóni og erfiðleikum í sambandi við fóðuröflun bænda á þessu sumri. Þau viðbrögð, sem bent hefur verið á af ráðunautum og forustumönnum Búnaðarfélags Íslands, eru í fyrsta lagi að bera á kalskellurnar, auka grænfóðurrækt og auka endurræktun túna. Kannað hefur verið hvort ekki sé unnt að auka sáðvöruinnflutning. Nokkurt magn sáðvöru mun vera til hjá innflytjendum, en einn af innflytjendum sagði mér í morgun að það tæki um hálfan mánuð að fá flutt inn fræ sem pantað væri. Það er því ástæða til þess fyrir bændur, sem ekki hafa pantað sáðvörur, að gera það hið fyrsta svo að unnt sé að bæta úr því í tæka tíð.
Enn hefur ekki verið fjallað um það að neinu marki í rn., hvernig brugðist skuli við þessum vanda. Hv. 6. þm. Suðurl. nefndi hér t. a. m. Bjargráðasjóð. Ég geri ráð fyrir að Bjargráðasjóður fái þetta mál til meðferðar þegar það kemur í ljós hvernig uppskera sumarsins reynist og hvað mikið skortir á venjulegan heyforða bænda. Er það eftir venju, að þá verði leitað til Bjargráðasjóðs til úrbóta, ef verulegur skortur er á heyforða miðað við það sem venjulegt er. Það er þess vegna ljóst, að ekki verður leitað til Bjargráðasjóðs fyrr en á haustdögum, eftir að forðagæslumenn hafa kannað fóðurbirgðir frá sumrinu.
Hér var minnst á grænfóðurstyrk eða grænfóðurframlag, sem er samkv. jarðræktarlögum. Ég hef þegar átt viðtal um það við búnaðarmálastjóra, að felld verði niður á þessu ári sú skerðing, sem jarðræktarlög gera ráð fyrir að sé á grænfóðurframlagi. Enn hefur ekki verið formlega frá því gengið, en lögin gera ráð fyrir að ráðh. sé heimilt að fella slíka skerðingu niður að fenginni umsögn Búnaðarfélags Íslands. Ég vænti þess, að stjórn Búnaðarfélags Íslands fjalli um það efni einhvern næstu daga. Ég tel að það sé eðlilegt og nú séu forsendur fyrir því að fella þessa skerðingu niður þannig að fullt framlag fáist á grænfóðurrækt á þessu ári með tilliti til þessara kalskemmda.
Ég vil aðeins bæta því við, að rn. mun síðan, þegar könnun á þessum kalskemmdum hefur farið fram með ítarlegri hætti en þegar er orðið, taka þessi mál til nánari athugunar.
Í öðru lagi minntist hv. 6. þm. Suðurl. á afleiðingar Heklugossins 17. ágúst s. l. og gat þess, að nefnd hefði verið skipuð, sem rétt er. Ég skipaði til þess nefnd fyrir fáum vikum að athuga afleiðingar af Heklugosinu og sjá hvernig það kæmi út eftir veturinn. Í stuttu máli eru niðurstöður nefndarinnar þær, að enn sé ekki hægt að sjá mikinn mun á þeim niðurstöðum sem urðu samkv. könnun á s. l. hausti um gróðurskemmdir, en það kann að koma betur í ljós þegar gróður nær sér á þessum svæðum meira á strik en þegar er orðið.
Í tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir því, að nauðsynlegt sé að verja nokkru fé til girðinga: Í fyrsta lagi að girtir verði 4–5 km frá Ófærugili í nýja hraunið til þess að hindra rennsli fjár úr byggð norður í Landmannaafrétt. Þetta er venjuleg afréttargirðing sem þarf að setja þar upp og er ekki mikið stórvirki. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að bæta við girðingar, bæði landgræðslugirðingar og aðrar girðingar, til þess að hafa hemil á rennsli sauðfjár og hafa hemil á því, hvernig afrétturinn sé nýttur með tilliti til gróðurverndar. Þessar girðingar eru nokkru lengri, eða um 20 km, sem gerðar eru tillögur um.
Þá gerir nefndin tillögur um áburðardreifingu bæði á heimalönd þeirra jarða, sem verst hafa orðið úti vegna öskufalls, og einnig á afréttarlönd. Má segja að kostnaður við þessar framkvæmdir gæti verið í áburði nálægt 2.7 millj. kr. og í girðingum nálægt 0.5 millj. kr. Nefndin hefur ekki gert tillögur um fjármögnun þessara framkvæmda og hef ég óskað eftir frekari tillögum um þann þátt af hálfu nefndarinnar, en vænta má að það, sem ráðist verður í af landbótum með áburðargjöf, verði að kosta af ríkisfé — eða af fé Landgræðslunnar sem ekki er of mikið að þessu sinni. Það er hægt að hugsa sér að um styrk væri að ræða til girðingar, þar sem um afréttargirðingu er að ræða, enda þótt það sé víðast um land sem sveitarfélög eða einstaklingar sinni afréttargirðingum. Þessi mál eru og verða til frekari könnunar af hálfu rn. Nál. er fyrir stuttu komið fram og mér er ljóst að það þarf að bregðast við með skjótum hætti varðandi suma þætti þessa máls.
Hv. þm. Steinþór Gestsson ræddi um að það hefði mátt sjá þessar gróðurskemmdir fyrir og að s. l. vetur hefði verið erfiður, sem rétt er, og taldi að það hefði verið tilefni til þess að létta svokölluðu kjarnfóðurgjaldi af. Ég tel að þetta sé ekki rétt, það sé ekki tilefni til þess enn þá, hvað sem síðar verður, ef í ljós kynni að koma að þessi áföll af völdum náttúrunnar leiða til þess, að bændur ná ekki þeim fóðurforða sem nauðsynlegur er fyrir búpening næsta vetur.