20.10.1980
Efri deild: 4. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

25. mál, Flutningsráð ríkisstofnana

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil þakka þær ábendingar og stuðning, sem fram kom í máli hv. 3. þm. Vesturl., og geta þess, að í 4. gr. frv., varðandi það sem hann ræddi síðast, er sérstaklega tekið fram að við alla tillögugerð skuli leitað samráðs við Samband ísl. sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga svo og samtök opinberra starfsmanna og aðra aðila sem hlut eiga að máli. Við höfum sannarlega hugsað fyrir því, enda gerum við okkur grein fyrir því, að það er ein nauðsynlegasta forsendan fyrir því, að skynsamlegar ákvarðanir séu teknar.

Ég skal svo undirstrika það sem ég hef gert áður, en gerði ekki í framsögu minni núna, — það sem hv. 3. þm. Vesturl. kom inn á, að margir þröskuldar væru í vegin um. Þeir eru miklir. Og það er ekki aðeins að þröskuldarnir séu í ríkiskerfinu sjálfu, þar sem mjög mikil tregða ríkir gegn því að flytja stofnanir, gegn því að stofna útibú, sem hafi eitthvert valdsvið, og gegn því að stofna deildir sem hafi einhverju verulegu hlutverki að gegna. Þröskuldarnir, sem við kynntumst í starfi okkar í stofnananefndinni, eru ekkert síður, því miður, heima fyrir. Þar þarf að athuga mörg mismunandi sjónarmið og samhæfa vilja heimamanna áður en hægt er að standa skynsamlega að málum.

Hv. þm. kom einmitt inn á það veigamesta í þessu, sem við í nefndinni fengum að kynnast áþreifanlega, en það er spurningin um það, hvort öll þjónusta í hverju kjördæmi ætti að vera á einum og sama stað. Um þetta voru ákaflega skiptar skoðanir innan nefndarinnar og við ræddum við stjórnir allra samtaka sveitarfélaga, héldum með þeim sérstaka fundi og þar voru mjög skiptar skoðanir um það, með hverjum hætti ætti að standa þar að málum. Niðurstaða nefndarinnar varð sú, að hún tók ekki afstöðu til þess, hvernig málum skyldi skipað innan hvers kjördæmis.

Síðan hafa komið fram hugmyndir sem ég tel allrar athygli verðar og tengjast þessu mjög, en það eru hinar svokölluðu þjónustumiðstöðvar sveitarfélaganna þar sem reynt er að koma inn í eina miðstöð á hverjum stað sem allra flestu af því sem menn þurfa að leita til varðandi opinbera þjónustu. Sú hugmynd, sem þar er fram sett og hefur verið reifuð hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga sérstaklega, er allrar athygli verð og hlýtur að koma mjög inn í þá mynd sem hér er gert ráð fyrir. En þar eru menn að vísu ekki með hugmynd um það, að innan hvers kjördæmis sé ein þjónustumiðstöð, heldur sé reynt á hverjum stað að koma upp einhverri slíkri miðstöð sem menn geti sótt til flesta opinbera þjónustu eða um verði að ræða umboðsskrifstofu í hverju byggðarlagi eða á hverju þjónustusvæði.

Ég hef þetta því miður ekki hér hjá mér nú, hefði þó gjarnan viljað reifa örlítið meira þessar hugmyndir um þjónustumiðstöðvar í leiðinni af því að vikið var að þeim. En ég held að meginhugmyndin þar sé ekki endilega ein þjónustumiðstöð í hverju kjördæmi, heldur nokkrar þjónustumiðstöðvar. Ég veit að t.d. á Austurlandi er gert ráð fyrir að slíkar þjónustumiðstöðvar yrðu a.m.k. á fimm eða sex stöðum í kjördæminu.