17.11.1980
Efri deild: 15. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í B-deild Alþingistíðinda. (560)

42. mál, útvarpslög

Flm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Frv. það, sem ég hef leyft mér að flytja til breyt. á útvarpslögum, fjallar um það í stuttu máli, að Ríkisútvarpið fái að nýju tolltekjur af innflutningi sjónvarpstækja og hluta til þeirra.

Ég hygg að ekki þurfi að fara um það mörgum orðum, svo kunnugt er það mönnum, að Ríkisútvarpið hefur tengi átt við fjárhagsörðugleika að etja, mjög verulega örðugleika. Á árinu 1979 var rekstrarhalli Ríkisútvarpsins — sjónvarps 358.5 millj. kr. og rekstrarhalli hljóðvarpsins 86.1 millj. Ljóst er að á yfirstandandi ári stefnir í mjög verulegan hallarekstur hjá stofnuninni, sennilega tvöfaldar tölurnar frá árinu 1979.

Ástæðurnar fyrir þessum mikla halla eru einkum af tvennum toga: Ríkisútvarpið naut lengi vel tekna af aðflutningsgjöldum á sjónvarpstækjum, en það kom upphaflega til á árinu 1964 og var í gildi allt til ársins 1976 þegar það var numið úr lögum. Heimild til að láta þennan tekjustofn renna til Ríkisútvarpsins var numin brott nánast þegjandi og hljóðalaust. Ég hygg að það hafi raunar komið ýmsum hv. þm. á óvart þegar í ljós kom að þá breytingu var búið að gera.

Sem sagt er í þessu frv. gerð till. um að útvarpslög kveði svo á, að Ríkisútvarpið fái þennan tekjustofn að nýju um takmarkaðan tíma.

Ef Ríkisútvarpið hefði notið þessa tekjustofns á árinu 1979 hefði hann fært því um 1157 millj. kr. til uppbyggingar dreifikerfis og til kaupa á tækjum og búnaði.

Í ár er líklegt að tekjur ríkissjóðs af innflutningi sjónvarpstækja nemi um 1 milljarði. Ríkisútvarpið fær ekkert af því fé, en þess í stað er stofnuninni af hálfu ríkissjóðs boðið 450 millj. kr. lán. Þrengri fjárhagur Ríkisútvarpsins hefur komið að verulegu leyti niður á framkvæmdum við dreifikerfið, við dreifingu og styrkingu sjónvarpsdreifikerfisins og svo einnig kaupum á tækjum og búnaði. Framkvæmdir við dreifikerfið hafa verið í algeru lágmarki og það sama gildir um kaup á tækjum til sjónvarpsrekstrarins.

En önnur meginástæðan fyrir þessum fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins er sú, að afnotagjöld eru reiknuð inn í vísitölu framfærslukostnaðar og hafa þar með áhrif í átt til kauphækkana ef þau hækka. Þess vegna hefur verið rík tilhneiging hjá stjórnvöldum til að leyfa ekki nema mjög óverulegar hækkanir á afnotagjöldum.

Það er ekki óeðlilegt að gerður sé samanburður á áskriftarverði dagblaða og afnotagjaldi útvarps og sjónvarps. Þegar Ríkisútvarpið hóf göngu sína, fyrir réttum 50 árum í næsta mánuði, var afnotagjald útvarps 30 kr. á ári, en það sama ár var áskriftarverð dagblaðs 24 kr. á ári þannig að útvarpsáskriftin var 6 kr. dýrari en áskrift að dagblaði. Nú er það hins vegar svo á árinu 1980, að samanlagt afnotagjald útvarps og svarthvíts sjónvarps er 59 100 kr., en það er ívið ódýrara en árs áskrift að dagblaði. Þarna hefur því sigið á ógæfuhliðina fyrir þessari stofnun. Ég held að ef menn hugleiða hlutfallið, sem þarna er á milli, sé yfir flestu kvartað í sambandi við útvarp og sjónvarp öðru en því, að afnotagjöldin séu of há.

Hér er sem sagt gert ráð fyrir að útvarpið fái þessar tekjur næstu þrjú ár. Það er miðað við þrjú ár í þeirri von að á þeim tíma fáist eðlileg leiðrétting á afnotagjöldum stofnunarinnar þannig að hún þurfi ekki á mörkuðum tekjustofnum að halda, heldur geti starfað eðlilega innan ramma tekna sinna af afnotagjöldum og auglýsingum.

Um þessar mundir eru uppi áætlanir um húsbyggingu fyrir Ríkisútvarpið. E.t.v. sýnist ekki öllum eitt um þá framkvæmd, en hitt er ljóst, að Ríkisútvarpið — og einkum hljóðvarpið — býr við gersamlega óviðunandi aðstöðu í húsnæðismálum og raunar að því er varðar alla starfsaðstöðu. Þótt byrjað væri á fyrirhugaðri nýbyggingu Ríkisútvarpsins nú strax er alveg ljóst að það mundu liða a.m.k. 3–5 ár þangað til starfsemin gæti flust þangað. Það liggur því fyrir að á næstunni verður að gera ráðstafanir til að leysa húsnæðisvanda Ríkisútvarpsins með einhverjum hætti. Það mun kosta verulegt fjármagn.

Sömuleiðis er líka ljóst, að alveg á næstunni verður að hefjast handa um framkvæmdir við nýja langbylgjustöð. Loftnetsmöstur langbylgjustöðvarinnar á Vatnsenda eru komin mjög til ára sinna, jafngömul útvarpi hér, og eru að mati sérfræðinga að hruni komin og nánast kraftaverk að þau skuli enn standa. Gæti svo farið, ef gerði hér verulegt hvassviðri, að þau stæðust það ekki. Þá væri þessari stofnun illa komið. Ég hef ekki séð birtar neinar áætlanir um hvernig fjármagna skuli byggingu nýrrar langbylgjustöðvar, en þó er alveg óhjákvæmilegt að í það verði ráðist. Það er ekki hægt að búa við þá áhættu sem fylgir því að töluverður hluti landsins verði án útvarps í einhvern ákveðinn tíma, meðan verið er að reisa ný loftnetsmöstur.

Af því, sem ég hef hér rakið, held ég að ljóst hljóti að vera að Ríkisútvarpið er fjárhagslega aðkreppt stofnun og valda því aðgerðir stjórnvalda, sem annars vegar hafa numið brott fasta tekjustofna og hins vegar synjað um eðlilegar hækkanir afnotagjalda.

Það eru gerðar miklar kröfur til útvarpsins. Það á í senn að vera eitt mesta menningartæki þjóðarinnar og ekki síður öryggistæki í þágu allra landsmanna. Það er sannarlega ekki vansalaust hvernig að þessari stofnun hefur verið búið. Þessi breyting er í þá átt hugsuð að bæta fjárhag og stöðu útvarpsins og stuðla þannig að því að það megi betur þjóna hlutverki sínu sem menningarstofnun allra landsmanna.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og menntmn.