18.11.1980
Sameinað þing: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (577)
338. mál, styrkir til bygginga orlofsheimila verkalýðssamtakanna
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hv. 1. landsk. þm. hefur borið fram fsp. til mín varðandi styrki til byggingar orlofsheimila verkalýðssamtakanna, og veiti ég við þeirri fsp. eftirfarandi svar:
1) Til byggingar orlofsheimila verkalýðssamtakanna voru í fjárlögum veittar 48 millj. kr. árið 1979 og 80 millj.kr. árið 1980. Í fjárlagafrv. ársins 1981 er gert ráð fyrir 112 millj. í þessu skyni.
2) Árið 1979 fengu þessir aðilar styrki: ASÍ vegna Ölfusborga 10 millj. kr., Alþýðusamband Vestfjarða vegna orlofsbúða í Vatnsfirði 10 millj. kr., Alþýðusamband Norðurlands vegna Illugastaða 10 millj. kr., Alþýðusamband Austfjarða 10 millj.kr., orlofsbúðir Svignaskarði 5 millj. kr., Hið íslenska prentarafélag 1.5 millj. kr., Múrarafélag Reykjavíkur 1.5 millj. kr. Samtals 48 millj. kr.
Um það leyti sem fjárlög höfðu verið afgreidd var ákveðin eftirfarandi skipting á framlögum þessa árs: ASÍ 15 millj. kr., Alþýðusamband Vestfjarða 11 millj. kr., Alþýðusamband Norðurlands 20 millj. kr., Alþýðusamband Austfjarða 20 millj. kr., orlofsbúðir Svignaskarði 11 millj. kr., Hið íslenska prentarafélag 3 millj. kr. Samtals 80 millj. kr.
Ekki er unnt að gera nákvæma grein fyrir byggingarstigi umræddra framkvæmda hvort ár fyrir sig. En verkefni þau, sem þessir styrkir fóru til, voru samkvæmt upplýsingum aðila í stórum dráttum sem hér segir:
1) ASÍ: Ríkisstyrkurinn hefur farið til uppbyggingar Ölfusborga. Þeirri uppbyggingu er nú lokið hvað varðar einstök orlofshús, en þau eru 37. Eftir er að byggja upp svokallaða heildaraðstöðu sem fyrirhuguð hefur verið frá upphafi samkvæmt skipulagi orlofssvæðisins. Þær framkvæmdir, sem nú eru á dagskrá, eru m.a. lagfæring útivistarsvæðis. Fjárframlög eigenda eru talin hafa numið 78 millj. kr. árið 1979, en 83 millj. kr. árið 1980.
2) Alþýðusamband Vestfjarða: Framlag til Alþýðusambands Vestfjarða hefur farið til uppbyggingar orlofsbyggingar í Vatnsfirði. Þeirri uppbyggingu er ekki lokið hvað varðar einstök orlofshús eða heildaraðstöðu. Eftir er að ganga frá umhverfi þeirra 14 húsa sem þegar hafa verið byggð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um byggingu fleiri orlofshúsa á svæðinu, en samkvæmt skipulagi eiga þau að verða 30 talsins. Framlög eigenda eru talin hafa numið 230 millj. kr. árið 1979, en 50 millj. kr. á þessu ári.
3) Alþýðusamband Norðurlands: Fé því, sem komið hefur í hlut Alþýðusambands Norðurlands, hefur verið varið til þess að múrhúða svonefnt kjarnahús og ganga frá ýmsum lagfæringum orlofssvæðisins að Illugastöðum. Á árinu 1979 varð kjarnahúsið fokhelt og lokið var við byggingu sex nýrra sumarhúsa en á þessu ári hefur kjarnahúsið verið gert tilbúið undir tréverk og múrhúðað. Enn fremur hefur næsta umhverfi verið lagfært. Á svæðinu hefur þegar verið byggt 31 orlofshús. Auk ríkisframlags var varið 84 millj. kr. til smíði nýrra orlofshúsa og framkvæmda við sameign á árinu 1979. Ekki liggur fyrir endanleg tala um kostnað við framkvæmdir á þessu ári.
4) Alþýðusamband Austurlands: Framlag það, sem kom í hlut Alþýðusambands Austurlands á árinu 1979, var notað til þess að standa straum af hönnunarkostnaði 19 nýrra orlofshúsa að Einarsstöðum á Fljótsdalshéraði, en 11 hús hafa þegar verið byggð þar. Þessa árs styrkur hefur ekki verið notaður enn sem komið er, en honum verður varið til framkvæmda við hin fyrirhuguðu orlofshús sem ráðgert er að hefjist á næstunni. Um leið og framkvæmdir hefjast eiga félögin að greiða 25% af áætluðum kostnaði, en hann var áætlaður 15 millj. kr. á hvert orlofshús. Síðan eiga félögin að greiða eftir því sem framkvæmdum miðar.
5) Orlofsbúðir Svignaskarði: Styrknum, sem kom í hlut orlofsbúða að Svignaskarði 1979, var varið til þess að greiða kostnað við lagningu þriggjafasa raflínu að orlofshúsunum, en nægjanlegt rafmagn fékkst ekki með þeirri einfasa línu sem fyrir var. Félögin 19, sem í hlut eiga, greiddu sjálf vegna þessara framkvæmda 10.6 millj. kr. Þessa árs styrkur hefur allur farið í framkvæmdir til fegrunar umhverfis orlofshúsanna, til gerðar útivistarsvæða og vegagerðar. Reiknað er með því, að kostnaður vegna framkvæmda á þessu ári verði nálægt 19 millj. kr. og framlag félaganna verði því um 8 millj. kr. Að Svignaskarði hafa þegar verið byggð 30 orlofshús.
6) Hið íslenska prentarafélag: Framlag það, sem Prentarafélagið hlaut á árunum 1979 og 1980, rann til orlofsheimila þess í Miðdal í Laugardalshreppi í Árnessýslu. Var því varið til vegalagningar á orlofssvæðinu og um það og ræktunarframkvæmda svo og endurbóta og breytinga á orlofshúsum félagsins. Heildarkostnaður vegna þessara verkefna á þessum tveimur árum nemur um 15.7 millj. kr. svo að eigið framlag hefur verið um 11.2 millj. kr.
7) Múrarafélag Reykjavíkur: Styrkur sá, sem Múrarafélagið hlaut árið 1979, rann til byggingar nýs orlofsheimilis í Öndverðarnesi í Grímsneshreppi. Bygging hófst í maí 1979, en húsið var tekið í notkun í júnímánuði s.l. Næstum öll smíðavinna við húsið var sjálfboðavinna félaga í Múrarafélagi Reykjavíkur. Auk þess greiddi félagið til þessara framkvæmda 3.1 millj. kr. á árinu 1979, og samkvæmt bráðabirgðauppgjöri hefur það lagt fram 6.3 millj. kr. á þessu ári. Þá hefur félagið einnig varið rúmlega 5 millj. kr. hvort umræddra ára til annarra framkvæmda á orlofssvæði sínu, svo sem til vegagerðar, vatnsveituframkvæmda o.fl.
Árið 1979 bárust ekki umsóknir frá öðrum aðilum en þeim sem styrki hlutu á því ári og ég hef hér gert grein fyrir. En auk þeirra, sem styrk fá á þessu ári, sóttu tveir aðilar um styrk sem synja varð vegna þess að fjármunir voru ekki fyrir hendi. Í fyrsta lagi var þar um að ræða umsókn frá Sjómannadagsráði í Reykjavík og Hafnarfirði, sem sótti um styrk til byggingar þjónustumiðstöðvar orlofshúsahverfisins Hraunboga í landi Hraunkots í Grímsnesi. Og í öðru lagi var um að ræða beiðni frá Grafíska sveinafélaginu, sem sótti um styrk til kaupa á orlofshúsi.
Ég vænti þess, herra forseti, að ég hafi þar með svarað þeim fsp. sem til mín var beint. Ég vil svo aðeins segja vegna ummæla hv. fyrirspyrjanda áðan um þessi mál og skiptingu fjármagns, að ég tel út af fyrir sig eðlilegt að í tengslum við ákvörðun fjárlaganna reyni menn í félagi að átta sig á því, hvernig þessum fjármunum yrði hugsanlega skipt á næsta ári. Ég tel slíkt ekkert óeðlilegt. Þvert á móti tel ég það í rauninni að mörgu leyti heppilega reglu, sem sjálfsagt er að taka til athugunar.