18.11.1980
Sameinað þing: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (593)

46. mál, breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að andmæla þeim skilningi hæstv. forsrh. að það sé óþinglegt að bera fram þær fsp. sem við stjórnarandstæðingar höfum gert nú við þessar umr. Þær eru hluti þessa máls. Ég vil eins og hæstv. forsrh. vísa til þess þskj. sem við erum að fjalla hér um. Fsp. er um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils, en við skulum líta á hvernig fsp. hljóðar, með leyfi hæstv. forseta, og það er svona:

„Vill ríkisstj. taka til endurskoðunar fyrirætlanir um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils, með tilliti til þess að sú aðgerð sé ekki liður í víðtækri stefnumótun og framkvæmd til að ráða bót á verðbólgunni og koma á stöðugleika og jafnvægi í efnahagslífi þjóðarinnar og geti því aukið á upplausn og vantrú manna á gjaldmiðlinum í stað þess að treysta hann?“

Þetta er mergurinn málsins. Af öllu þessu stafa þessar umr. Það er sá ótti okkar sem felst í því, að verðgildisbreytingin, sem á að hafa í för með sér hugarfarsbreytingu að mati ráðh. eins og ég gat um í fyrri ræðu minni, verði blekking ein vegna þess að samhliða séu ekki gerðar viðeigandi ráðstafanir til að ráða bót á verðbólgunni og þvert gegn tilgangi sínum muni hún auka vantrú manna á gjaldmiðlinum í stað þess að treysta hann. Þetta eru svo hrapalleg mistök að þm. eru í fullum rétti að spyrja um þetta mál þó með mismunandi orðalagi sé.

Svo getur hæstv. forsrh. komið hér í ræðustól og sagt að það sé óþinglegt að spyrja um hvenær þeirra ráðstafana sé að vænta sem eru hluti, ekki einungis hluti heldur forsenda, þess máls sem hér er verið að spyr ja um. Þess í stað færir hæstv. ráðh. fram hér hinar mestu blekkingar um staðreyndir máls í sambandi við verðbólguna. Að vísu skákar hæstv. ráðh. í því skjólinu að almenningur á Íslandi er orðinn leiður á tali um verðbólgu, gjörsamlega hættur að treysta því sem við stjórnmálamenn segjum um það mál, og lenda þar flestir því miður í einum og sama báti. Þess vegna er það, að hæstv. ráðh. kann að haldast það uppi í einhverjum hópi að fá menn til að trúa því, að rétt sé sem hann segir þegar hann heldur því fram að verðbólgan sé á niðurleið. En það er gert með afskaplega einkennilegum reikningskúnstum þar sem dæmið sjálft og útkoman eru alls ekki byggð á sömu forsendum. Þess vegna er ekki hægt að setja jafnaðarmerki þar á milli.

Herra forseti. Ég taldi mig vera að tala um þingsköp. Gefst mér tækifæri til að halda áfram?

Hæstv. forsrh. átaldi það harðlega að þm. skyldu leyfa sér að koma með beinar spurningar sem hann taldi að væru alls ekki hluti þessa máls. Ég hef ekki orðið vör við að það þætti óþinglegt í umr. um þingmál að spyrja í tengslum við málið, eins og nú er gert. Það er enn þá leyfilegt eftir þingsköpum að aðrir en fyrirspyrjandi taki til máls um fsp. Ég hef ekki orðið vör við að það þætti óþinglegt að draga fram atriði sem geta varpað ljósi á það mál sem um er fjallað. Og til þess að það verði betur ljóst, hvort hér er raunverulega um þá óhæfu í málatilbúnaði í ríkisstj. að ræða sem við stjórnarandstæðingar höldum fram, alveg kjörið tækifæri fyrir hæstv. ríkisstj. að skýra frá því, ef gjaldmiðilsbreytingin er svo einföld að hún hafi svo sem ekki neitt kostað, hugarfarsbreytingin sem ég leyfði mér að kalla svo í ræðu minni með skírskotun til ummæla hæstv. forsrh. og fleiri ráðh. Meiningin hjá hæstv. ríkisstj. er, að því er virðist, að blekkja þjóðina með því að reyna að breyta hugarfari hennar með verðgildisbreytingunni og gera ekkert annað til að bæta úr efnahagsástandi þjóðarinnar, en láta verðbólguna æða áfram og halda fram blekkingum með tölum um staðreyndir mála.

Hæstv. ráðh: sagði að það þyrfti æðimarga hagfræðinga til að geta svarað því, hvað þessi aðgerð kostaði. — Það er ekki von að hægt sé að svara fsp., eins og hér er lögð fram á þskj., fyrst reglusemin er ekki meiri á þessu heimili en svo að menn geta ekki einu sinni svarað því hvað jafneinföld afmörkuð aðgerð kostar. Það hljóta þó að vera til reikningar einhvers staðar í þjóðarbúskapnum um hrein tæknileg atriði, eins og þau sem við stöndum frammi fyrir um næstu áramót þegar við tökum núllin aftan af krónunum okkar. Þeir hljóta að vera til einhvers staðar. Með venjulegum reikningsaðferðum væri hægt að leggja saman og draga frá og segja okkur hvað þetta kostar. (Gripið fram í: Er þetta um þingsköp, forseti?) Þetta er um þingsköp. Ég er að andmæla því, hv. þm., að sjálfur hæstv. forsrh. landsins komi og átelji að þm. leyfi sér að bera fram með öðru orðalagi fsp. um það sem þessi dagskrárliður fjallar um og er nauðsynlegur hluti þess máls. (Gripið fram í.) Hv. þm. fékk óátalið að grípa fram í fyrir mér. Ég hlýt, herra forseti, að fá að svara því þegar hv. þm. fá að grípa inn í efnisatriði ræðu. Það félag, sem hv. þm. nefndi, hefur löngu lokið aðalfundi sínum og fundarsköp þar eru ekki hér til umr. Það væri brot á þingsköpum ef væri farið að tala um það. — En það er engin ástæða til þess að óbreyttir þm. sitji þegjandi undir þeim ákúrum hæstv. forsrh. að þeir brjóti þingsköp með því að ræða um það sem stendur skýrum stöfum í þskj. er þeir hafa í höndum.