18.11.1980
Sameinað þing: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (597)

46. mál, breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Fyrir um það bil hálfum mánuði sagði hæstv. viðskrh. í umr. einmitt undir þessum dagskrárlið eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Eftir að grunnkaupshækkanir urðu, þ.e. samkvæmt síðustu samningum, verður ekki komist hjá að gera efnahagsráðstafanir.“

Eftir að hæstv. ráðh. hafði svo mælt spurðu þm. eðlilega: Hverjar eru þær ráðstafanir sem hæstv. viðskrh. er að boða? Ég trúi því ekki að jafnþingreyndur maður og hæstv. forsrh. telji það óeðlilegt, þegar ráðh. í ríkisstj. gefur þannig upp boltann í umr. með yfirlýsingu, að þm. spyrji nánar um þetta tiltekna atriði.

Það var gengið á hæstv. viðskrh. út af þessum umr. og hann spurður hvað hann væri að boða með slíku tali. Eftir nokkurt þóf sagði hæstv. viðskrh. síðar í þessum sömu umr., með leyfi forseta:

„Það hefur ekkert verið sagt að þær ráðstafanir, sem um er talað, eigi að beinast gegn launafólki.“

Þetta er rétt, en ég spyr: Vill hæstv. viðskrh. eða hæstv. forsrh., ég tala nú ekki um hæstv. fjmrh. eða félmrh., þá ráðh. í núverandi ríkisstj. sem telja sig fulltrúa öreiganna í landinu, gefa hér yfirlýsingar um að komandi ráðstafanir umtalaðar berist ekki gegn launafólki? — Ég er ekki í neinum vafa um að sams konar fyrirspurn bíður á vörum hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar, hvort sem hann hefur nú uppburði til þess að koma hér upp í ræðustól og spyrja eða hvort að hann gerir það á öðrum vettvangi, en það skiptir ekki meginmáli.

Ég skora á hæstv. viðskrh. að minnsta kosti, sem viðhafði þessi ummæli undir þessum dagskrárlið fyrir um hálfum mánuði, að gefa þá yfirlýsingu hér, að væntanlegum efnahagsráðstöfunum verði ekki beint gegn launafólki í landinu. Ef hann gerir það geta menn verið rólegri að því er varðar þing Alþýðusambandsins. En það fer ekki hjá því, að ef hæstv. ráðh. sitja áfram þegjandi og svara engu til, tala í dylgjum og undir rós, hlýtur þing Alþýðusambandsins að krefjast þess af hæstv. ráðh. að þeir segi til um hvaða ráðstafanir hér er verið að tala um. — Og ég er viss um að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson verður í þeim hópi sem spyr hvað ákafast.