20.10.1980
Neðri deild: 4. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í B-deild Alþingistíðinda. (60)

17. mál, olíugjald til fiskiskipa

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er ástæðulaust að flytja hér langt mál um það frv. sem er nú til 1. umr., en þó nauðsynlegt strax við 1. umr. að fara um það nokkrum orðum, bæði frv. sjálft og ýmislegt annað sem því er tengt.

Það er svo, að ýmsir stjórnmálamenn og framámenn landsins skilja eftir sig mismunandi spor og ólíkar minningar um liðinn tíma. Ég hygg að núv. hæstv. sjútvrh. sé búinn að velja sér grafskrift í þeim dúr sem segir í fornu spakmæli, að „hið góða, sem ég vildi gera, það geri ég ekki, en hið vonda, sem ég ekki vil, það geri ég“. Og í áframhaldi af þessu er hæstv. sjútvrh. líklega búinn að bæta við því, sem ætti að vera öðrum viti til varnaðar og mundi vera á þá leið, að „hið góða, sem ég lofaði, það geri ég ekki heldur“. Kem ég að því síðar.

Eins og hér hefur komið fram er þetta frv. þess efnis að hækka olíugjald frá því að vera 2.5% upp í 7.5%, sem er, eins og sagt hefur verið, 200% hækkun. Ég held að menn hljóti að fara nokkra mánuði aftur í tímann þegar núv. hæstv. sjútvrh. leggur slíkt plagg fram hér á Alþ. Það er ekki lengra síðan en í mars s.l. að þessi sami hæstv. ráðh. talaði hér í umr. þá um olíugjaldsfrv. og talaði í þeim dúr, eins og hér hefur verið minnt á, að þetta gjald væri eitur í hans beinum og að það væri hans stefna og hans markmið að afnema það með öllu. Á þessum tíma stóð yfir deila sjómanna á Vestfjörðum við útvegsmenn og blandaðist olíugjaldið mikið inn í þá deilu. Það er nauðsynlegt að hér komi fram, auk þeirrar yfirlýsingar hæstv. ráðh. sem er bókuð í umr. frá þessum tíma, að þar mun hafa verið gefið loforð um að áfram skyldi haldið á þeirri braut að lækka þetta gjald þar til það yrði að fullu afnumið.

Verkalýðshreyfingin á Vestfjörðum telur að með þessu frv. sé hæstv. sjútvrh. að brjóta í bága við gefin fyrirheit hans sjálfs, sem urðu að nokkru leyti og kannske verulegu leyti til þess að leysa sjómannadeiluna á Vestfjörðum á s.l. vetri. Á kjaramálaráðstefnu, sem Alþýðusamband Vestfjarða hélt s.l. laugardag, var samþykkt ályktun þar sem segir, með leyfi forseta:

„Ráðstefnan mótmælir harðlega boðaðri löggjöf um hækkun olíugjalds, sem brýtur í bága við gefin fyrirheit sjútvrh. varðandi lausn sjómannadeilunnar á Vestfjörðum á s.l. vetri.“

Hér er það því ótvírætt, að þessi ákvörðun hæstv. ráðh. brýtur gersamlega í bága við þau fyrirheit sem hann gaf sjómönnum á Vestfjörðum og þar með sjómannastéttinni sem heild, því þetta á ekki bara við vestfirska sjómenn, — brýtur gjörsamlega í bága við þau fyrirheit sem í fyrra voru gefin: Það er nauðsynlegt að þetta komi hér fram. Ég hygg að hæstv. ráðh. hafi meint eitthvað með þeim ummælum, sem hann viðhafði í ræðu á hv. Alþ. á s.l. vetri, í mars, að hann vildi fara þessa leið, og hann hafi meint það með gefnum loforðum varðandi lausn deilunnar á Vestfjörðum, að hann vildi stíga þetta skref, en einhverra hluta vegna hefur hann horfið frá því og leggur nú til stórkostlega hækkun á þessu gjaldi. — Það er margyfirlýst stefna sjómannasamtakanna í landinu að þau skorast ekki undan því að taka þátt í þeim erfiðleikum sem verða vegna olíugjalds eða olíuverðshækkana, en þau mótmæla því alfarið, að þau mál séu leyst á þeirra kostnað einna.

Eins og fram kemur í þessu frv. eða grg. þess var olíugjald fyrst lagt á í mars 1979 og var þá 2.5%. Í maí 1979 var þetta gjald hækkað upp í 7%, í júnímánuði 1979 fór gjaldið upp í 12%, í okt., 1979 var það 9%, í janúar 1980 5% og 1. mars 1980 2.5%. Það er nauðsynlegt vegna þessa að það komi hér fram, að fulltrúi sjómannasamtakanna greiddi atkvæði með öllum fiskverðsákvörðunum í tengslum við þetta gjald að undanskilinni ákvörðuninni 1979, þegar fulltrúi sjómanna greiddi atkvæði með fiskverðinu, en lét bóka að hann væri ekki samþykkur upphæð olíugjaldsins. Það er nauðsynlegt að þetta liggi fyrir, að í öll skiptin, að undanteknu því sem nú er að gerast, hafa sjómannasamtökin ekki lýst andstöðu við gjaldið. Það er fyrst núna sem alfarið og einhuga koma fram af hálfu sjómannasamtakanna mótmæli gegn því sem nú er verið að gera. Og ég er ekkert hissa á því, í ljósi þess sem á undan er gengið, þó að nú verði af hálfu sjómannasamtakanna látið til skarar skríða varðandi þessa ákvörðun. Ég lít svo á, að með þessari ákvörðun og í ljósi fenginnar reynslu af því, sem gerst hefur á undanförnum mánuðum og árum, sé hér verið að efna til slíks stríðs á vinnumarkaðnum innan fiskvinnslunnar sem heildar að menn sjái ekki enn hvað þeir eru í raun og veru að vekja upp með því frv. sem hér er á dagskrá.

Ég dreg enga dul á að það eru erfiðleikar hjá útgerðinni og hjá fiskvinnslunni. Það hygg ég að menn séu almennt sammála um. En mér er spurn varðandi það atriði málsins: Væri ekki athugandi fyrir hæstv. sjútvrh. að feta í fótspor hæstv. samgrh. og kanna hvort bankastofnanir í landinu vildu ekki útvega bæði sjómönnum og fiskvinnslufólki hagkvæm lán til að kaupa hlut bæði í útgerð og fiskvinnslu til að skjóta sterkari stoðum undir þessar atvinnugreinar, eins og hann sjálfur hefur látið frá sér fara að því er varðar t.d. hlutabréfakaup starfsfólks í Flugleiðum? Það er ekkert vafamál að ef hæstv. sjútvrh. vildi verða samstíga hæstv. samgrh. í þessu mætti bæta stöðu útgerðar og fiskvinnslu með þeim hætti.

En það eru fleiri en hæstv. sjútvrh. sem agnúast og fordæma þetta gjald, sem hann nú leggur hér til að verði stórlega hækkað. Hv. þm. Garðar Sigurðsson, formaður sjútvn. þessarar d., lét hafa eftir sér í Vísi ekki alls fyrir löngu, eða 15. okt., held ég, um þetta og sagði, með leyfi forseta: „Aðferðin er bölvuð og vitlaus líka.“ — Eigi að síður ætlar hv. þm. að styðja þetta frv., að því er fram kom í þessari sömu blaðagrein. Sé svo ekki fagna ég því. Kemur væntanlega yfirlýsing um það hér síðar.

En varðandi afstöðu formanns sjútvn. Nd. vil ég aðeins segja það, að ég hef meiri trú á því og sannfærist um það eftir því sem lengra líður, að það hefði verið æskilegra að ég hefði fengið stuðning hv. þm. Sjálfstfl. í sjútvn. Nd. við það að kjósa hv. þm. Matthías Bjarnason formann þeirrar n. þegar kjör fór fram til starfa í embætti þeirrar n. í síðustu viku. Það hefði verið æskilegra. Þá hefði verið miklu, miklu meiri von til þess að fá mótvægi gegn þessu frv., sem hér er um að ræða, hefðu sjálfstæðismenn farið að mínum ráðum og stutt samflokksmann sinn í formennskukjöri. — Þetta vildi ég láta koma fram nú vegna þess sem gerðist í sambandi við kjör formanns sjútvn. Nd.

Ég sagði áðan að ég þyrfti ekki að hafa langt mál um þetta, en vil að lokum segja það, að hæstv. sjútvrh. hefur lýst því yfir að till. hans um olíugjaldið séu ótækar og olíugjaldið sem slíkt sé eitur í hans beinum. Sjómenn hafa harðlega mótmælt því fiskverði, sem ákveðið hefur verið á grundvelli þessa olíugjalds, og meðan ráðh. sjálfur fordæmir mál, sem hann flytur, er engin ástæða fyrir Alþ. að samþykkja það, allra síst þegar málið er með þeim hætti sem þetta er, að skapa glundroða, upplausn og nánast stríð, sem að mínu viti er hugsanlegt á vinnumarkaðnum. Í ljósi þessa mun Alþfl. greiða atkv. gegn þessu frv. í meðförum þingsins.

Ég vil aðeins að lokum — nú er ljóst að umfjöllun þessa máls hér í þinginu mun taka nokkurn tíma — spyrjast fyrir um það hjá hæstv. sjútvrh. hvort ekki sé öruggt að hæstv. ráðh. verði hér í landinu næstu tvær til þrjár vikur, meðan menn sjá hvernig þetta gengur, bæði að því er varðar þetta einstaka mál og aðrar stórvægilegar blikur sem á lofti eru varðandi fiskvinnsluna og sjávarútveginn í heild.