18.11.1980
Sameinað þing: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (601)

46. mál, breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Mér þykir rétt að segja hér þó ekki sé nema nokkur orð í þessum umr. um fsp. mína og þó það væri ekki til annars en lýsa ánægju minni yfir þeim miklu umr. sem þessi fsp. hefur hlotið. Það er ákaflega eðlilegt að það séu miklar umr. um svo veigamikið mál sem hér um ræðir, og umr. sýna að það var ekki vanþörf á að hreyfa þessu máli hér í þinginu.

Ég vil með nokkrum orðum segja það sem mér finnst aðalatriði þessa máls.

Það eru vissar staðreyndir sem liggja augljósar fyrir. Það er augljós staðreynd að ekki liggur núna fyrir hver sú heildarstefna er í efnahagsmálunum sem gjaldmiðilsbreytingin á að fylgja. Þetta er staðreynd. Það er staðreynd, að það eru líka allir sammála um að ekki sé ráð að gera gjaldmiðilsbreytingu nema sem lið í heildarráðstöfunum. Þetta mál hlýtur því að snúast um heildarráðstafanir í efnahagsmálunum. Og það er ekki nóg að þær ráðstafanir liggi ekki enn fyrir: Aðspurðir geta ráðh. ekki gefið okkur neitt til kynna um það nú á elleftu stund hverjar þessar ráðstafanir eigi að vera.

Það er auðvitað eðlilegt að þm. hafi nokkrar áhyggjur af þessu og það komi fram í hinni miklu þátttöku þm. í þessum umr. og það komi fram í spurningum þm. Það er ekkert óeðlilegt við þetta. Það eru þvert á móti eðlileg viðbrögð og lýsir því að mönnum er órótt út af þessu máli.

Það eru mjög slæm tíðindi að heildarstefna skuli ekki núna liggja fyrir. En það, sem er verst í þessu efni að mínu viti, er að tíminn er hlaupinn frá okkur. (Forseti hringir.) Herra forseti. Hvað er mér ætlaður langur tími? (Gripið fram í.) Já, og hvað hef ég talað lengi? (Forseti: Þú hefur talað tvær mínútur.) Já, ég vil vekja athygli forseta á því að samkv. 32. gr. þingskapa er gert ráð fyrir að fyrirspyrjandi geti talað jafnoft og ráðh. sem svarar. Þó er ég ekki að segja að ég ætli að gera það. Hæstv. ráðh. hefur talað fjórum sinnum. Ég hef áður talað tvisvar. Ég hafði látið mér detta í hug að tala núna þennan ræðutíma og tel mig eiga hann samkv. þingsköpum. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á þessu og held að þetta fari ekki á milli mála.

Ég sagði að tími okkar væri hlaupinn. Það, sem ég á við með því, er að jafnvel þó að það kæmi heildarstefna og jafnvel þó að það væri eitthvað haldbært í þeirri stefnu, en ég efast um hvort tveggja, er það of seint fram komið. Það er ekkert vit í því að ætla að gera svo örlagaríka ráðstöfun sem gjaldmiðilsbreytinguna nema vera búinn að undirbyggja það með löngum fyrirvara með ákveðinni stefnuskrá og freista þess að skapa það traust meðal almennings í landinu á þeim aðgerðum sem er alger forsenda fyrir því að þær heppnist. Og það er ekki nóg með að það sé þýðingarmikið að þær heppnist. Við stöndum í þeim vanda að það geti verið að þessar ráðstafanir hafi þveröfug áhrif við það sem til er ætlast vegna þess hvernig að er staðið. Og þá erum við að hella olíu á verðbólgubálið. Og við erum kannske að glata um alllanga framtíð því tækifæri sem sjálfsagt var að nota undir réttum kringumstæðum með gjaldmiðilsbreytingunni, því að við gerum ekki svona breytingar annað hvort ár eða á nokkurra ára fresti.

Vegna þess að þetta mál er svo alvarlegt sem raun ber vitni um hef ég í þessum umr. áður borið brigður á að það væri ekki hægt að fresta núna þessari aðgerð. Ég hef borið brigður á það, sem hæstv. viðskrh. hefur eftir embættismönnum í Seðlabankanum, að ekki sé hægt að fresta aðgerðinni eða það sé erfitt. En ég segi: Það eru svo miklir hagsmunir í veði að það verður að athuga það miklu raunhæfar en gert hefur verið hvort ekki er hægt að ryðja úr vegi þeim framkvæmdaörðugleikum sem kunna að vera á því að fresta þessu máli núna.

Hæstv. forsrh. sagði áðan að við í stjórnarandstöðunni hefðum getað borið fram frv. um að breyta lögunum. Það er alveg rétt. En við kusum að vekja athygli á vandanum með þessum hætti, gerðum það fyrir mánuði. Og með því að bera fram þessa fsp. og leggja hana fram á Alþ. hnipptum við í hæstv. ríkisstj. Við höfum með þessum vinnubrögðum viljað taka mið af því, hve alvarlegt og viðkvæmt þetta mál er. Við höfum með því að aðvara ríkisstj., með því að gefa henni ráð viljað reyna að styðja hana til jákvæðrar niðurstöðu í svo þýðingarmiklu máli. Við höfum talið að þetta væru eðlilegustu vinnubrögðin í því skyni.