18.11.1980
Neðri deild: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (611)
33. mál, málefni Flugleiða hf.
Frsm. meiri hl. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það mál, sem hér er til umfjöllunar, hefur hlotið allítarlega meðferð hér á Alþ. og mun ég því reyna að stytta nokkuð mál mitt, því að við höfum verið þeirrar skoðunar í fjh.- og viðskn. Nd., sem höfum unnið að þessu máli, að það bæri að hraða málinu eins og hægt væri, og við höfum reynt að vinna að málinu samkv. því.
Þetta mál, sem hér er til umr., þ.e. frv. til l. um málefni Flugleiða, og hér er flutt af hæstv. ríkisstj., má rekja með einum eða öðrum hætti til hins svokallaða Atlantshafsflugs. Þetta flug er og hefur verið áhættuflug og hefur skapað félaginu margvísleg a erfiðleika. Orsakir þessara erfiðleika hafa verið til umfjöllunar lengi, en það, sem fyrst og fremst kemur þar til, eru ytri skilyrði. Skilyrði á þessari flugleið eru gjörbreytt. Áður ríkti nokkur takmörkun á því hverjir gætu þar flogið, en nú er ekki um slíkar takmarkanir að ræða lengur. Þetta er að sjálfsögðu fyrst og fremst ástæðan.
Hins vegar er ýmislegt annað sem ekki hefur hjálpað til í þeim erfiðleikum. Það hefur tekið félagið of langan tíma að laga sig að þessum aðstæðum. Yfirbyggingin hefur verið mikil, það hefur verið ólga meðal starfshópa innan félagsins, og því má segja að ýmislegt í stjórnun félagsins hafi farið miður en gott hefði verið, og ég skal ekki rekja það hér. Hins vegar vil ég segja það, að margt má af þessari sögu læra og það er sjálfsagt að gagnrýna þróun þessara mála. Þar hafa átt sér stað mistök. Hins vegar tel ég, að við ættum að reyna að tæra af þessari sögu.
Það er eðli alls atvinnurekstrar að mínum dómi að þegar vel gengur aðlagast kostnaðurinn tekjunum. Menn eyða eftir því sem þeir hafa handa í milli. Það er ýmislegt sem þarf að gera og vantar að gera og kostnaðurinn aðlagast tekjunum. Þegar verr fer að ganga og illa stendur á er aftur á móti erfiðara að koma kostnaðinum niður þegar tekjurnar fara að lækka. Við þetta vandamál hafa Flugleiðir augljóslega átt að stríða, og við getum einnig hugsað okkur svipað dæmi, ef ríkissjóður Íslands og ýmis fyrirtæki í þjóðfélaginu yrðu fyrir slíkum áföllum sem þarna hafa átt sér stað. Ég á von á því, að það mundi standa í ýmsum að aðlaga sig þeim aðstæðum sem þá mynduðust. Ég er ekki að segja með þessu að allt hafi þarna verið rétt gert. Ég er ekki þeirrar skoðunar. Ég vil hins vegar viðurkenna það, að hér er um mikið vandamál að ræða sem ég held að væri hollt fyrir ýmsa að setja sig inn í. Það væri mikið vandamál að skera niður fjárlög ríkisins um nokkra milljarða eða nokkra tugi milljarða. Ég býst við að það mundi standa í ýmsum. Það er einnig vandamál að segja upp starfsfólki svo hundruðum skiptir. Þessar andstæður hafa komið fram í þessu máli.
Nm. í fjh.- og viðskn. eru, að því er ég best veit, sammála um að það sé ástæða til að hafa miklar áhyggjur af framtíð Atlantshafsflugsins. Ég orðaði það svo, eftir að ég hafði hlýtt á mál manna varðandi framtíð þessa flugs, að það væri svipað og vera staddur á miðunum úti fyrir Austurtandi í hinni frægu þoku sem þar ríkir oft langtímum saman. Menn sjá ekki þar til lands, og mér sýnist að það sjái enginn til lands í þessu máli. Hins vegar hefur verið tekin sú ákvörðun að halda þessu flugi áfram í tilraunaskyni, en formaður stjórnar félagsins, sagði aðspurður, hversu lengi þessu flugi væri hægt að halda áfram, — hann sagði: svo lengi sem vit er í.
Auðvitað er erfitt að meta það, hversu lengi er vit í að halda áfram þessu flugi. En ég vil segja það sem mína skoðun, að það er ekki vit í því að ganga svo langt að við sökkvum dýpra og dýpra í skuldafen sem erfitt verður að komast upp úr. Það er vissulega réttlætanlegt að halda þessu flugi áfram af ýmsum ástæðum. Það er réttlætanlegt vegna þess að það er margt fólk sem vinnur við það og hefur mikla hagsmuni. Það gæti einnig verið réttlætanlegt vegna þess að menn sjá bjartari tíð og vonast til að skilyrðin muni lagast. Því miður er ekkert sem bendir til þess, að hinir gömlu góðu tímar, eins og menn orða það, komi aftur á þessari flugleið. Það er ekkert sem bendir til þess, að ríkisstj. Bandaríkjanna muni breyta um flugmálastefnu, svo að ekki er von til að á þessari flugleið verði slíkur hagnaður sem áður var. Hins vegar vita menn að það mun að sjálfsögðu kom að því, að hin stóru flugfélög geti ekki lengur borið uppi það mikla tap sem er á þessari flugleið. En enginn veit hvenær það verður og hvenær markaðurinn verður með eðlileg um hætti. Um þetta getum við ekkert fullyrt á þessari stundu. Ég get út af fyrir sig samþykkt að halda þessu áfram um nokkurt skeið, en ég er sannfærður um að það mun ekki líða á löngu þar til þessi mál koma aftur til meðferðar hér á Alþingi.
Ég ætla, herra forseti, ekki að ræða almennt meir um málefni þessa félags og vil því snúa mér að því nefndarstarfi sem við höfum innt af hendi og ég mæli hér fyrir, en undir það skrifa ásamt mér hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, Matthías Á. Mathiesen, Matthías Bjarnason, Ingólfur Guðnason og Albert Guðmundsson.
N. hefur rætt þetta mál á allmörgum fundum. Við fengum við upphaf okkar nefndarstarfs bréf frá Flugleiðum hf., dags. 11. nóv. 1980, og stjórnarformaður félagsins, Örn Ó. Johnson, kom á okkar fund, skýrði þetta bréf og sjónarmið félagsins og svaraði ýmsum fsp. og veitti okkur upplýsingar. Þá kölluðum við einnig á fulltrúa frá Starfsmannafélagi Arnarflugs hf., en Starfsmannafélagið hafði ritað n. bréf og komið þar á framfæri ábendingum og óskum, og okkur þótti rétt að tala við fulltrúa þessa félags vegna þessa bréfs og einnig vegna þess að í nál. Ed. komu fram atriði sem varða þessi samtök. Þá kom einnig á fund n. hæstv. samgrh. og veitti okkur ýmsar upplýsingar og svaraði þeim fsp. sem fram komu.
Það, sem við höfum fyrst og fremst fjallað um, eru þau skilyrði sem koma fram í nál. frá Ed., og skal ég nú rekja þau nokkuð.
Fyrsta skilyrðið er þess efnis, að aukningu hlutafjár ríkisins í 20% verði komið til framkvæmda fyrir næsta aðalfund. Í bréfi Flugleiða hf. segir: „Stjórn félagsins samþykkir fyrir sitt leyti að hlutast til um það, að hlutafjáreign ríkissjóðs í Flugleiðum hf. verði aukin í 20%.“ Má því segja að stjórnin hafi samþykkt þetta atriði. Hv. þm. Matthías Á. Mathiesen og Matthías Bjarnason vilja taka fram, að þeir eru andvígir því að ríkissjóður auki hlutafjáreign sína, og hv. þm. Albert Guðmundsson vill einnig taka fram, að hann telur rétt að auka hlutdeild ríkissjóðs í félaginu í 20% sem tryggingu fyrir áhrifum og eftirliti með rekstri Flugleiða hf. á meðan umrædd fyrirgreiðsla stendur, en telur, að ríkissjóði beri skylda til að selja hlutabréfin þegar fjárhagsstaðan batnar og ríkisábyrgðin fellur brott.
Í öðru lagi kom fram í áliti Ed. að starfsfólki eða samtökum þess verði á sama tíma gefinn kostur á að eignast hlutafé fyrir a.m.k. 200 millj. kr. og þannig stuðlað að því að sameiginlegt atkvæðamagn starfsfólks nægi til kjörs eins fulltrúa í stjórn. Stjórn félagsins hefur tjáð í nefndu bréfi og formaður stjórnarinnar á okkar fundi að félagið hafi þegar hrundið í framkvæmd útboði hlutafjár að fjárhæð 234 millj. 974 þús. kr. til starfsmanna félagsins og telur þess vegna að þetta skilyrði sé uppfyllt.
Í n. urðu allmiklar umr. um áhrif starfsfólks í félaginu og hvernig það væri best tryggt. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé góð regla í öllum stærri hlutafélögum, að starfsfólk eigi aðild að stjórninni eða fulltrúar starfsfólks, ekki vegna þess að það eigi þar hlutabréf, heldur vegna þess að það sé þar starfandi. Við töldum í n. að það væri mikilvægt að efla samstöðu og áhrif starfsfólks í stjórn félagsins og það mundi verða til þess að auka ábyrgð starfsfólksins og þá mundi félaginu vegna betur. Í þessu sambandi viljum við benda á og fram kemur í okkar nál. það sem stendur í 47. gr. laga um hlutafélög, en þar stendur:
„Í samþykktum er heimilt að veita stjórnvöldum eða öðrum rétt til að tilnefna einn eða fleiri stjórnarmenn.“ Þegar hlutafélagalöggjöfin var til meðferðar á Alþ. á sínum tíma þótti rétt að hafa þann möguleika, að starfsfólk gæti átt sæti í stjórnum hlutafélaga, ekki vegna þess að það ætti þar hlutafé, heldur sem fulltrúar starfsfólksins og vinnuaflsins í félaginu. Það er því ekkert því til fyrirstöðu, að starfsfólkið geti kosið eða tilnefnt stjórnarmenn í félag sé það ákveðið í samþykktum viðkomandi félags. Hitt er svo annað mál, að þegar um er að ræða félag sem hefur starfað um langan tíma og ætti að ákveða sjálft að starfsfólkið fái aðild að stjórninni með fullum réttindum, þá er þar um allflókið lagalegt atriði að ræða og mjög líklegt að það mundi teljast stangast á við 77. gr. laganna og yrði litið svo á að það væri verið að takmarka rétt þeirra hluthafa sem fyrir eru í félaginu, takmarka rétt og áhrif þessara hluthafa til þess að tilnefna menn í stjórn. Það er hins vegar ekkert því til fyrirstöðu samkv. núgildandi lögum að starfsfólki verði veitt aðild að stjórnum hlutafélaga án atkvæðisréttar, og við teljum, að starfsfólk Flugleiða hf. eigi að fá tækifæri til að tilnefna fulltrúa á þessum grundvelli, þ.e. á grundvelli laga um hlutafélög, og samþykktum félagsins verði breytt í þessu skyni. Félag allra starfsmanna tilnefni fulltrúa þessa að undangenginni kosningu í þeirra samtök. Þetta viljum við setja fram og koma á framfæri við ríkisstj. og bæta því við þau atriði er fram komu í meirihlutaáliti frá hv. fjh.- og viðskn. Ed.
Í þriðja lagi kom fram í nál. fjh.- og viðskn. Ed. að aðalfundur Flugleiða verði haldinn fyrir lok febr. 1981 og kosin ný stjórn í samræmi við breytta hlutafjáreign, en framhaldsaðalfundur haldinn síðar ef þörf krefur. Í bréfi Flugleiða hf. kom fram, að samkv. 67. gr. laga um hlutafélög skal leggja fram ársreikning og skýrslur endurskoðenda á árlegum aðalfundi hlutafélags, og samkv. 10. gr. samþykkta Flugleiða hf. skal leggja ársreikninginn fram á aðalfundi og stjórnin skýra frá hag félagsins á liðnu ári áður en gengið er til stjórnarkosninga. „Í öðru lagi er bent á,“ og nú vitna ég í bréf Flugleiða hf., „að samkv. 18. gr. samþykkta félagsins skipa 9 menn aðalstjórn þess og 3 menn varastjórn. Á aðalfundi 1981 skal kjósa 5 menn í aðalstjórn, en kjörtímabil þeirra 5 manna, sem úr stjórn félagsins ganga þá, lýkur fyrst við lok aðalfundar það ár. Kjörtímabil þeirra fjögurra manna, sem kosnir voru í stjórn félagsins á aðalfundi 1980, er til loka aðalfundar 1982. Af tæknilegum ástæðum er fyrst hægt að reikna með því að ársreikningur félagsins geti legið fyrir í apríl 1981, og er því fyrirsjáanlega ekki raunhæft að boða til aðalfundar fyrr en í apríl á næsta ári. Með vísan til framanritaðs samþykkir stjórn félagsins að hraða nauðsynlegum undirbúningi aðalfundar 1981 og boða til hans svo fljótt sem mögulegt er.“ Síðan kemur: „Stjórn félagsins tekur þó fram, að ef það er ófrávíkjanleg krafa ríkisstj. að til aðalfundar félagsins verði boðað og hann haldinn fyrir lok febr. 1981 og þeir stjórnarmenn, sem kjósa skal á þeim fundi, verði kosnir þá þegar, er stjórnin reiðubúin til að boða til aðalfundarins með dagskrá þar að lútandi sem þá verði tekin ákvörðun um á fundinum.“
Það þótti rétt að reyna að afla lagalegra skýringa á þessu atriði og fengum við í okkar hendur bréf það varðandi, sem hæstv. samgrh. fékk, og vil ég vitna í það hér. Þar kemur fram:
„Í 67. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, segir, að aðalfund skuli halda eftir því sem samþykktir ákveða, þó aldrei sjaldnar en einu sinni á ári og aldrei síðar en innan 9 mánaða frá lokum hvers reikningsárs. Á aðalfundi skal leggja fram ársreikninga og endurskoðunarskýrslu.
Samkv. upphafi 10. gr. samþykktar Flugleiða hf. frá 28. 4. 1980 skal halda aðalfund eigi síðar en 30. júní ár hvert. Stjórn Flugleiða telur útilokað, að ársreikningur geti verið tilbúinn í febrúar 1981 og er það án efa rétt. Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu, að haldinn verði aukafundur í febrúarmánuði, sbr. 68. gr. l. nr. 32/1978 og 12. gr. samþykktanna. Samkv. 2. mgr. 47. gr. laganna skal hluthafafundur kjósa stjórn hlutafélags. Ekki er lagaskilyrði að það sé aðalfundur hlutafélagsins. Samkv. 18. gr. samþykktanna skipa 9 menn stjórn félagsins og auk þess eru varamenn þrír. Kjörtími aðatmanna er tvö ár, en varamanna eitt ár. Aðatmenn skiptast í tvo hópa. 4 aðalmenn eru kosnir á aðalfundi 1980 og kjósa skal 5 menn á aðalfundi 1981. Ef kjósa á alveg nýja stjórn á hluthafafundi í febr. eða aðalfundi í apríl er ekki annað til ráða en að öll stjórnin, bæði aðalmenn og varamenn, segi af sér stjórnarstörfum, sbr. 48. gr. laganna, miðað við hluthafafund í febr. eða aðalfund í apríl.
Í þessu sambandi vil ég benda á, að í samþykktum Flugleiða hf., 17. gr., er ákveðið að samþykktum félagsins megi breyta á hluthafafundi þar sem hluthafar, sem hafa umráð yfir 2/3 hlutum hlutafjárins, eru mættir og tillaga hlýtur 4/5 hluta greiddra atkv. Þessi heimild nær til stjórnarkjörs. Í þessu sambandi vil ég benda á 2. mgr. 47. gr. laganna, en þar segir, að í samþykktum megi feta stjórnvöldum að nefna til einn eða fleiri stjórnarmenn, þó aldrei meiri hl. Ef ákveðið verður að fresta breytingum á stjórn til aðalfundar í apríl þurfa aðeins þeir 4 stjórnarmenn, sem kosnir voru í apríl, að segja af sér, þar sem kjörtímabil annarra stjórnarmanna rennur út á fundinum.“
Þetta var álit Benedikts Sigurjónssonar á þessu atriði sem mér þykir rétt að vitna til. Í því er í reynd ekkert annað gert en að rekja staðreyndir samþykkta og staðreyndir laga, og má af því sjá að það er ekkert því til
fyrirstöðu að haldinn sé hluthafafundur í febr. sem taki á dagskrá stjórnarkjör í hlutafélaginu Flugleiðum hf.
Í fjórða lagi kom fram í nál. frá Ed. að starfsmannafélagi Arnarflugs væri gefinn kostur á að kaupa hlut Flugleiða í Arnarflugi. Um það segjum við í okkar nál.:
„Nm. eru sammála um að Starfsmannafélagi Arnarflugs sé gefinn kostur á að kaupa hlut Flugleiða hf. í Arnarflugi hf.“
Matthías Á. Mathiesen tekur fram að óeðlilegt sé að gera þær kröfur til fyrirtækis, sem leitar aðstoðar ríkisins, að það selji eignir sínar nema til þess að bæta fjárhagsstöðu eða koma fram stefnumótun löggjafans. Að því tilskildu er eðlileg t að starfsmönnum viðkomandi fyrirtækis sé gefinn kostur á að kaupa hlutabréfin.
Í bréfi Flugleiða hf. kemur fram að forráðamenn þeirra eru tilbúnir að ganga til viðræðna um þetta mál, og við erum því sammála, sem kom fram í nál. frá fjh.- og viðskn. Ed., að starfsmönnum þessa félags verði gefinn kostur á að kaupa þessi hlutabréf.
Í fimmta lagi kom fram í nál. fjh.- og viðskn. Ed. að ársfjórðungslega verði ríkisstj. gefið yfirlit yfir þróun og horfur í rekstri Flugleiða. Um þetta eru allir sammála og stjórn félagsins telur þetta eðlilegt og því ekki meira um það að segja.
Í sjötta lagi kom fram í nál. Ed., að „fram fari viðræður ríkisstj. og Flugleiða um nýjar reglur varðandi hlutafjáreign í fyrirtækinu, sem m.a. takmarki atkvæðisrétt einstaklinga og fyrirtækja sem hlut eiga í Flugleiðum.“
Um þetta atriði segir í þeirri grg. sem við fengum: „Í 6. lið bréfs samgrn. er einungis farið fram á viðræður um atkvæðagildi hlutabréfa o.fl. Flugleiðir hf. fallast á slíkar umræður. Það skal hins vegar viðurkennt, að hér er um margslungið mál að ræða sem þarfnast mikillar athugunar. Samkv. 6. mgr. 9. gr. samþykktanna má enginn fara með meira en 1/5 hluta atkv. í félaginu fyrir sjálfan sig eða aðra samanlagt né heldur gefa öðrum umboð til að fara með atkv. fyrir þá eign sem kann að vera umfram 1/5 hluta hlutafjárins og telst ekki til atkvæða. Ákvæðum um rétt hluthafa að þessu leyti er erfitt að breyta, sbr. 77. gr. laganna. Allir, sem verða fyrir slíkri réttarskerðingu, verða að gjalda henni jákvæði.“
Þar sem um þetta þurfa að fara fram talsverðar kannanir og viðræður, sem mér skilst að Flugleiðir séu reiðubúnar að hef ja, sé ég ekki ástæðu til að eyða um það fleiri orðum.
Við viljum benda á og tökum það fram í okkar nál., að við höfum ekkert við það að athuga að nefndar viðræður fari fram. Við viljum hins vegar benda á að hér er verið að tala um réttarskerðingu einstakra aðila, en um það segir m.a. í 77. gr. hlutafélagalaga:
„Samþykki allra hluthafa þarf til þess að ákvarðanir um eftirtaldar breytingar í félagssamþykktum verði gildar.“ Þar eru talin upp þrjú atriði og í þriðja lagi stendur: „Að takmarka heimild hluthafa til meðferðar á hlutum sínum eftir ákvæðum 19. og 20. gr. er skylda hluthafa til að þola lausn á hlutum sínum án þess að um slit félagsins sé að ræða.“
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta atriði, en vil aðeins ítreka þá skoðun n., að við sjáum ekkert því til fyrirstöðu, að slíkar viðræður fari fram, en viljum hins vegar benda á að okkur sýnast verulegir annmarkar á framkvæmd þess, að slík niðurstaða geti orðið.
Í sjöunda lagi kom fram í nál. fjh.- og viðskn. Ed. að Norður-Atlantshafsfluginu verði haldið fjárhagslega aðskildu eins og frekast er unnt. Um þetta eru allir sammála, og stjórn félagsins segir í sínu bréfi, að hún hafi þegar samþykkt að svokallað Norður-Atlantshafsflug félagsins verði fjárhagslega og reikningslega greint frá öðrum rekstri félagsins svo sem kostur er.
Herra forseti. Ég hef nú gert grein fyrir því starfi sem við höfum unnið í fjh.- og viðskn. Nd. um þetta mál. Við hefðum gjarnan viljað hafa tíma til þess að athuga betur ýmsar tryggingar fyrir þeim ábyrgðum sem þarna eiga að eiga sér stað. Við vorum hins vegar þeirrar skoðunar, að þessu máli yrði að ljúka hið allra fyrsta og það væri ekkert annað að gera en að tryggja þessar samgöngur og veita þessa ríkisábyrgð með þeim skilyrðum sem fram eru sett. Þess vegna töldum við það frambærilegt, að við eyddum ekki meiri tíma í rannsókn þessa máls og athugun á því, og miðað við það, sem við segjum í nál. og tökum þar fram, og einstakir nm. hafa þar fyrirvara um nokkur atriði eins og fram kemur í nál., þá leggjum við til að frv. til l. um málefni Flugleiða hf. verði samþykkt.