18.11.1980
Neðri deild: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (625)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vil í sambandi við þessa atkvgr. vekja athygli á því sem segir í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn., en þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Undirritaðir nm. telja mikilvægt að efla samstöðu og áhrif starfsfólks í stjórn félagsins. Í 47. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, segir: „Í samþykktum er heimilt að veita stjórnvöldum eða öðrum rétt til að tilnefna einn eða fleiri stjórnarmenn.“ Við teljum rétt að starfsfólk fái tækifæri til að tilnefna fulltrúa á þessum grundvelli og samþykktum félagsins verði breytt í þessu skyni.

Félag allra starfsmanna tilnefni fulltrúa að undangenginni kosningu.“

Hv. þm. Vilmundur Gylfason leggur til að kosinn verði fulltrúi með fullum réttindum í stjórn félagsins. Við fyrstu athugun okkar á þessu máli kom í ljós, að þetta stangast á við lög um hlutafélög og samrýmist ekki landslögum eins og þau eru í núverandi formi. Ég segi því nei.