20.10.1980
Neðri deild: 4. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (64)

17. mál, olíugjald til fiskiskipa

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég beindi þeirri spurningu til hæstv. ráðh. áðan, hvort ekki mætti vænta þess, að hann yrði hér í landinu á þeim tíma sem þessi mál væru hér til umr. í þinginu og raunar fleiri sem snerta fiskvinnslu og sjávarútveg. Ég vil eindregið óska eftir því við hæstv. ráðh., að við fáum svar við því, hvort ekki megi vænta — raunar hvort ekki sé öruggt að hæstv. ráðh. verði hér næstu 2–3 vikurnar.