18.11.1980
Neðri deild: 19. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (640)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Alþfl. hefur gert tilraun til þess að fá fram nokkrar breytingar á þessu frv. sem ég tel að hefðu horft mjög til bóta. Það hefur ekki tekist. En hér er á ferðinni mjög mikilvægt mál sem ég vil styðja. Ég segi já.