19.11.1980
Neðri deild: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
85. mál, þingfararkaup alþingismanna
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vil nú láta þess getið, að það er fullmikið sagt hjá hv. 4. þm. Reykv. að Alþ. hafi ekki bókhald sitt og reiður í lagi eða að Alþ., eins og hv. þm. sagði, geti gefið út ávísanir án þess að nokkur hafi með uppgjör á þeim málum að gera. En forsetar hafa tekið ákvörðun um og hafa fengið samþykki ríkisbókara fyrir því, að allt bókhald Alþingis verði fært þangað frá og með 1. janúar n.k. Þetta er ákveðið og þetta vil ég upplýsa að þessu gefnu tilefni.