19.11.1980
Neðri deild: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (667)
85. mál, þingfararkaup alþingismanna
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Það er stutt aths. vegna orða sem féllu hjá hv. 10. þm. Reykv., Friðrik Sophussyni.
Ég hefði ekki staðið hér upp og talað eins og ég talaði né Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., lagt fram nál. sitt nema vegna þess að við höfum báðir fyrirvara í þingflokki okkar um stuðning við þetta frv. og höfðum alltaf fyrirvara á. Síðast þegar þetta var rætt í minni viðurvist þar skýrði ég formanni þingflokks frá því um leið og ég fór af fundi, að ég mundi ekki styðja frv., en ég mundi hins vegar ekki tefja að það næði fram því að ljóst væri að mikill meiri hl. væri með þessari leið.
Það hefur ekki komið hér fram, en það er nú kannske mál og má vera að rétt sé að draga það fram vegna orða síðasta hv. ræðumanns, að þegar talað er um að hér megi kannske líta svo á að um valdahroka sé að ræða hjá þinginu ef það vil halda þessu valdi áfram hjá sér, þá geta líka verið aðrar hvatir til, sem ég bið hv. þm. og aðra að hafa í huga, þegar Kjaradómur kveður upp sinn dóm. Það er, að ef Kjaradómur er sjálfum sér samkvæmur er ljóst að laun alþm., þegar dómur verður kveðinn upp, munu stórhækka til þess að haldið verði í við sambærilega aðila á hinum frjálsa launamarkaði og reyndar hjá þeim aðilum líka sem nú búa við Kjaradóm. Það er þetta sem kannske er meginmál hjá mér og við hefðum átt að varast, að það verður erfiðara fyrir Alþ. á eftir að koma fram fyrir íslenska launamenn og segja við þá: Viljið þið gera svo vel og klípa aftan af launum ykkar þó að það verði ekkert fordæmi frá Alþ. þar um. - Mér er hins vegar kunnugt um að Alþ. hefur á undanförnum misserum margítrekað gert það.