19.11.1980
Neðri deild: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (668)

85. mál, þingfararkaup alþingismanna

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að hafa mörg orð um þetta frv., en ég vil þó láta þess getið, að ég tel engan veginn að frv. sé óumdeilanlegt eða gallalaust. Það virðist hins vegar nokkuð ljóst að yfirgnæfandi meiri hl. þm. óskar eftir því, að frv. nái fram að ganga í þessum búningi. Ég mun ekki setja mig upp á móti því þó að ég telji að vísu að sum ákvæði þess hefðu þurft nánari athugunar við.

Ég held að það sé líka rétt, sem kom hér fram hjá sumum ræðumönnum áðan, að allar líkur séu á að afleiðingin af samþykkt þessa frv. verði sú, að þm. geti átt von á talsverðum kauphækkunum sem kannske skella yfir á versta tíma þegar þeir eru að ætlast til þess af öðrum landsmönnum að gerðar séu hóflegar kröfur. Þetta getur svo sannarlega komið sér afar illa og verið mjög óheppilegt.

Ég verð hins vegar að segja það, að mér þykir dálítið vafasamt þegar þær skoðanir heyrast hér, að eðlilegast væri að hafa ekki mörg orð um þetta frv. og réttast væri að láta það fljóta hér í gegn umræðulaust, eins og ég skildi einna helst hv. þm. Friðrik Sophusson áðan, því að satt að segja tel ég að það væri Alþ. til lítils sóma að láta mál eins og þetta læðast í gegnum þingið meira eða minna umræðulítið eða umræðulaust.

Ég verð að segja að mér finnst furðulegur hraði á þessu máli, að það skuli vera ætlun forseta að ljúka umr. og gefa ekki hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen, sem þó skilar séráliti, kost á því að mæla fyrir séráliti sínu við 2. umr. málsins. Mér finnst það mjög sérkennilegt, svo að ekki sé meira sagt, og mundi telja það sjálfsagða kurteisi forseta við hv. samflokksmann sinn að gefa honum kost á að mæla fyrir nál. sínu.

Ég ætla svo ekki að hafa mörg frekari orð um málið, en láta þess getið, að sú grein frv., sem að vísu hefur orðið fullt samkomulag um milli þeirrar nefndar, sem undirbjó málið, en ég er hvað mest óánægður með, er 11. gr. frv. sem hljóðar svo:

„Nú gegnir alþm. starfi hjá ríki eða ríkisstofnun með þingmennsku. Skal hann þá njóta launa hjá ríki eða ríkisstofnun samkv. mati viðkomandi rn., þó aldrei hærri en 50%.“

Ég hefði talið eðlilegast að því hefði verið slegið föstu, að alþm. gegndu ekki öðrum fastlaunuðum störfum. (Gripið fram í.) En ég mun ekki flytja till. þess efnis. Nei, ég mun ekki gera það þó að skoðun mín sé að eðlilegast væri að þannig væri á málinu haldið. Ég ætla að beygja mig fyrir því samkomulagi sem hefur tekist um þetta mál og er, eins og menn vita, samkomulag allra þingflokka. Ég tel hins vegar enga ástæðu til að dylja það, að ég er óánægður með þetta ákvæði og ég er sérstaklega óánægður með að það skuli vera háð mati viðkomandi rn. hversu há prósentan skuli vera. Ég tel að þarna sé boðið upp á að eitt rn. úrskurði hana á einn veg og annað rn. á annan veg og geti því orðið hið herfilegasta ósamræmi. Ég hefði talið að þarna þyrfti einn aðili að vera úrskurðaraðili og tryggja að samræmi væri.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa orð mín fleiri. Ég efast ekkert um, að frv. þetta fer óbreytt í gegnum þingið, og ég mun ekki koma í veg fyrir það, en ég hefði talið það lágmarksskyldu forseta að sjá til þess, að sá þm., sem ekki getur verið hér mættur vegna veikinda og hefur skilað séráliti í málinu, fái aðstöðu til að mæla fyrir því.