19.11.1980
Neðri deild: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (670)
85. mál, þingfararkaup alþingismanna
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir aths. við orð mín áðan og alveg sérstaklega fyrir þær upplýsingar, að forsetar hefðu nú á 103. löggjafarþingi Íslendinga tekið þá ákvörðun að alþingiskostnaður skuti færður af ríkisbókhaldi eins og annar rekstur ríkisins. Ég met mikils þá hugsun sem á bak við þá ákvörðun forsetanna er, af því að ég tel að Alþ. eigi að sæta sem líkastri meðferð öllum öðrum opinberum rekstri.
Það virðist svo af ræðum manna, að það sé gengið út frá því sem vísu að dómur sá, sem á samkv. þessu frv., ef af lögum verður, að taka ákvarðanir um kjör alþm., hljóti að stórhækka laun þm. Mér finnst í hæsta máta óviðeigandi að þm. gefi slíkar yfirlýsingar, jafnvel þótt þeir telji sig hafa vissu um að svo sé eða meti stöðuna svo. Þetta er móðgun við dóminn. Og ég vil taka það fram fyrir mína hönd, að ég hef stutt tillögur um þessa aðferð í fjöldamörg ár, síðan þær komu hér fyrst fram, og afstaða mín byggist því ekki á getgátum um hvort dómurinn muni verða alþm. hagstæður eða ekki. Ég vil finna skásta kerfi sem við getum fundið til að þm. fái nokkurn veginn eðlileg laun miðað við það sem gerist í landinu. Það er svo oft þegar við sjálfir, og þar af leiðandi þeir sem ráða fyrir meiri hl. á þinginu, eigum að ákveða þetta að upp koma þessi orð: Það er óþægilegt að þm. fái kaupbreytingu núna, — rétt eins og heyrðist áðan. Ef menn vilja fara eftir því, að það er yfirleitt alltaf pólitískt óþægilegt ef þm. fá launabreytingar, er kannske rétt að við lögfestum að við skulum hafa 20–30% lægra kaup en einhverjar viðmiðunarstéttir. Ég sé enga betri leið til að forðast þau eilífu pólitísku óþægindi sem gera þetta að viðkvæmnismáli ár eftir ár, en láta aðila utan þings taka þessa ákvörðun.