20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (688)
92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Hæstv. ráðh. verður svarafátt. En þrátt fyrir það vil ég freista þess að spyrja þá tveggja spurninga, hæstv. forsrh. og hæstv. viðskrh., og gjarnan hefði ég viljað beina þeim spurningum einnig til hæstv. fjmrh. sem því miður hefur fjarvistarleyfi.
Ef gengið er út frá verðbólguspá þeirri sem hæstv. viðskrh. kynnti í Morgunpóstinum í morgun og mun vera gerð af Þjóðhagsstofnun svo að ég býst ekki við að hún sé vefengd, nema þá að hún sé of varleg eins og spár frá þeirri stofnun yfirleitt eru, og skal ég út af fyrir sig ekki lasta það, — ef gengið er út frá þessari spá um 70% verðbólguaukningu frá byrjun til loka næsta árs, þá er hækkun verðbólgu frá meðaltali yfirstandandi árs til meðaltals næsta árs milli 65 og 70%. En eins og kunnugt er er fjárlagafrv. og væntanleg lánsfjáráætlun byggð á því, að verðbólguvöxturinn að meðaltali frá yfirstandandi ári til næsta árs verði ekki nema 42%. Nú fáum við þm. ekki neina vitneskju um það, hvaða ráðstafanir gera skuli, ekki eingöngu í tengslum við myntbreytinguna, heldur einnig til þess að hafa til hliðsjónar í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og lánsfjáráætlunar. Forsendur fjárl. og lánsfjáráætlunar eru algerlega brostnar eins og sjá má af þessari spá. Þess vegna er spurning mín til ráðh.: Hvenær verða þær upplýsingar gefnar, eða ætlar hæstv. ríkisstj. að fresta afgreiðslu fjárl. og lánsfjáráætlunar fram yfir áramót? Þetta var fyrri spurningin.
Seinni spurningin er: Hvað hyggst ríkisstj. gera varðandi framkvæmd svokallaðra Ólafslaga í sambandi við vaxtabreytingu? Samkv. þeim lögum á fullkomin aðlögun vaxta og verðbólgustigs að hafa átt sér stað fyrir lok þessa árs. Samkv. þessu þyrftu vextir að hækka um 10 prósentustig eða úr 46% í 56%, ef um vaxtaaukalán er að ræða. Spurning mín er því sú: Hvernig ætlar ríkisstj. að standa að vaxtaákvörðunum?