20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (690)
92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. kippti með sér stefnuræðunni og lofaði okkur að heyra tilvitnun í hana að sjálfsögðu, sem enginn hafði grætt á að lesa áður.
Hæstv. forsrh. telur menn fara villu vegar þegar þeir vísa til þess að upplýst hafi verið af sjálfum hæstv. viðskrh. að verðbólgan stefni í 70%. Ég verð að segja það, að ég hef það mikið álit á hæstv. viðskrh. að ég tek hann trúanlegan. En hér er tönnlast á því, að það eigi að hefja aðgerðir. Þetta var sagt við myndun þessarar hæstv. ríkisstj. Ráðh. þurfa að vísu tíma áfram til útreikninga og til skipulagningar á verkum sínum. En ekkert annað fáum við að vita en að það eigi að framkvæma aðgerðir. Þeir hlytu að upplýsa okkur um hvað stæði til ef þeir vissu það sjálfir. Ekki er um gengisbreytingar að tefla, sem þeir þurfa trúlega að halda leyndum, vegna þess að gengið hrapar frá degi til dags, og Alþb., sem samþykkir að vísu þetta gengishrap sem munar tugum prósenta yfir árið, mun áreiðanlega ekki eftir yfirlýsingum að dæma frá því fyrr og síðar fallast á neina stórfellda gengisbreytingu. Þetta er því ekki leyndarmál sem þarf að skýla, eða ef svo er, þá þurfum við að fá að vita það.
Það var stefnumið að verðgildi íslensks gjaldmiðils yrði svipað gjaldmiðlum annarra Norðurlanda. Hversu lengi á það að standa? Hafa ekki komið nýjar fréttir um það, að reikna megi með því að krónan hrapi um 30% gagnvart þeim á næsta ári — eða er þetta rangminni mitt?
Ég marka hæstv. „kommissar“ í fríi, Tómas Árnason, þegar hann segir frá því í morgunútvarpi að búið sé að hlaða byssuna, hæstv. ríkisstj. sé búin að hlaða sína byssu, og þá er bara eftir að taka í gikkinn. Spurning er hvort það verður gert á Alþýðusambandsþingi. (Gripið fram í: Hvert er byssunni miðað?) Trúlega munu ýmsir hafa löngun þar til þess að taka í gikkinn, ef þeir verða sviknir um að fá upplýsingar um hvað til stendur, eins og var megininntak í loforðum hæstv. samgrh. í þeirri kosningabaráttu sem háð var í nóv.— des. 1979, þar sem hann tók fram fyrst og síðast að það yrðu höfð nákvæm samráð og samvinna við launastéttirnar í landinu um efnahagsráðstafanir þær sem gerðar yrðu.