20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hann er sérkennilegur, þessi stríðsdans sem hv. þm. Sjálfstfl. dansa í kringum hæstv. viðskrh. Fyrir tveimur vikum gaf hæstv. viðskrh. út yfirlýsingu og daginn eftir kom formaður Sjálfstfl., nýkominn frá útlöndum, á baksíðu Morgunblaðsins og lýsti því yfir, að það væri ekkert að marka þessa yfirlýsingu, hún væri marklaus. Nú kemur hv. þm. Sverrir Hermannsson og lýsir því hins vegar yfir, að hann taki ávallt mark á yfirlýsingum hæstv. viðskrh., enda séu þeir í „kommissara“-bræðralagi. Nú vil ég aðeins beina því til þm. Sjálfstfl., að þótt formaður flokksins fái ekki að ráða línu flokksins í öllum málum, þá tækjum við þó höndum saman um að í þessu máli fái hv. þm. Geir Hallgrímsson að hafa rétt fyrir sér. (Gripið fram í.) Ég held að margar af þeim yfirlýsingum, sem hæstv. ráðh. hefur verið að senda frá sér á undanförnum vikum og Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu hefur dansað hér í kringum, séu réttar metnar af hv. 1. þm. Reykv. heldur en hv. 4. þm. Austurl. (Gripið fram í: Marklausar?) Það má vel vera, að hæstv. viðskrh. hafi lýst því yfir í morgun að það hafi verið einhverjar verðbólgubyssur hlaðnar undanfarið. Það má vel vera. En ef sú hleðsla hefur einhvers staðar farið fram, þá er ég þeirrar skoðunar að hún hafi einkum og sér í lagi farið fram í þeim málaflokkum sem heyra undir hæstv. ráðh., þ.e. í verðlagsmálum, bankamálum og erlendum lántökum.