20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (695)
92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Hv. stuðningsmenn ríkisstj. hafa dyggilega gegnt því hefðbundna hlutverki í slíkum umr. að sitja í stólum sínum og segja ekki neitt. Eins og þing er nú skipað kemur engum á óvart að einn skyldi þó ekki geta setið á sér, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, og hann kvartaði um „stríðsdans“, en var ekki lengi að taka þátt í dansinum. Hvernig gerði hann það? Með því að skjóta úr launsátri á þann ráðh., viðskrh., sem hann sjálfur styður, svo að það var falleg mynd — eða hitt þó heldur — sem hann bætti inn í þessar umr.
Það má kalla þetta „stríðsdans“. En það, sem hér er að gerast hefur gerst í þrem þáttum í svörum við fyrri fsp. sem var svipaðs eðlis, og það, sem mun gerast í sambandi við fleiri tilefni er eingöngu að stjórnarandstaðan gegnir þeirri skyldu sinni að krefja ríkisstj. um upplýsingar um hvert hún stefni í stærsta og alvarlegasta vandamáli þjóðarinnar. Stjórnarandstöðunni ber að knýja út úr ríkisstj. upplýsingar um þetta mál. Það minnsta, sem stjórnin getur gert, er að segja hvað hún ætlar sér að gera, hvernig hún ætlar sér að stjórna, þó ekki væri nema nokkrar vikur fram í tímann.
Það er tilviljun að þessar umr. hafa fallið inn í fsp.tíma. Þær geta átt rétt á sér víða annars staðar. En það er óhjákvæmilegt að þessum stríðsdansi“, sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson kallaði svo, muni ekki linna fyrr en ríkisstj. sýnir þjóðinni þá virðingu að gefa henni upplýsingar um hvaða stefnu hún hafi í efnahagsmálum, ef hún hefur hana nokkra.